Dóra María: Alltaf að hugsa um Finnland Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2009 17:00 Dóra María Lárusdóttir í leik með Val síðastliðið sumar. Mynd/Stefán
Dóra María Lárusdóttir segist spennt fyrir leiknum gegn Hollandi í Kórnum á morgun en hann hefst klukkan 16.00. „Mér líst vel á þennan leik. Ég veit þó ekki mikið um hollenska liðið og man reyndar ekki hvort ég hafi spilað gegn því áður," sagði hún við Vísi í dag. „En þetta verður án efa jafn og spennandi leikur." Fjölmargir atvinnumenn eru nú í íslenska landsliðinu og fagnaði hún því tækifæri að fá landsliðshópinn allan saman nú. „Það er frábært að hitta alla aftur. Þetta er búið að vera öðruvísi þar sem við vorum alltaf saman öllum stundum en nú höfum við bara verið um tíu að æfa hér heima með landsliðinu." Dóra María sagðist hafa íhugað það sjálf að fara í atvinnumennskuna í haust en ákvað að vera heima. Hún var þar að auki nýbúin með háskólanám í Bandaríkjunum. „Ég velti því fyrir mér og átti í viðræðum við nokkur lið. En ég taldi það best fyrir mig að vera heima og ég sé alls ekki eftir því. Ég hef líka tekið eftir því að ég hef bætt minn leik," sagði Dóra María. Hún segist einnig orðin spennt fyrir úrslitakeppni EM sem fer fram í Finnlandi nú í sumar. „Þetta er alltaf í hausnum á manni. Þetta er það sem drífur mann áfram á erfiðum æfingum - að fara til Finnlands."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Isak aftur meiddur Enski boltinn Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ Espanyol getur gert Barcelona að meisturum á morgun „Erum með montréttinn á Akureyri“ Valgeir sá Schalke fara upp í úrvalsdeild „Gerist eiginlega ekki betra“ Logi fagnaði stórsigri gegn Galatasaray „Ingason sýningin“ í öruggum sigri Brann Bayern og PSG hvíldu sig vel fyrir seinni leikinn Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur Lögðu Arsenal og fara í úrslit Meistaradeildarinnar Afar óvænt tap Íslendingaliðsins Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Þróttur og HK á toppnum Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Sjá meira