Ótakmörkuð erlend tónlist 6. júní 2009 05:30 engilbert hafsteinsson Framkvæmdastjóri D3 er hæstánægður með samningana sem hafa náðst við erlendu útgáfurisana.fréttablaðið/stefán
Lagaúrvalið á síðunni Tónlist.is hefur verið aukið úr 50 þúsund lögum í 2.500.000 lög eftir að samningar náðust við erlenda útgáfurisa. Tónlist.is hefur náð samningum við erlendu útgáfurisana Universal, SonyBMG, Warner og EMI, auk smærri aðila sem felur í sér að loksins geta Íslendingar sótt sér erlenda tónlist á Netinu með löglegum hætti. „Við erum mjög spenntir enda tveggja ára vinna að baki. Við erum allir orðnir gráhærðir og skeggjaðir en loksins er þetta komið og það er nett spennufall,“ segir Engilbert Hafsteinsson, framkvæmdastjóri D3, sem rekur Tónlist.is. Breytingin felur í sér að notendur síðunnar geta nú valið um að hlaða erlendri tónlist niður til eignar, t.d. fyllt á iPod, eða greitt eitt áskriftargjald og hlustað á tónlist í tölvunni eða í farsímanum. Núna geta notendur sem sagt dreift tónlistinni um hina ýmsu miðla án þess að greiða oftar en einu sinni fyrir hana. „Á gamla mátann þurfti að kaupa tónlistina kannski fimm sinnum en núna geta menn keypt hana einu sinni óvarða og gert það sem þeir vilja við hana. Við erum eiginlega með þeim fyrstu í heiminum sem erum að bjóða upp á svona,“ segir Engilbert. Borgi menn til dæmis 2.700 króna áskriftargjald á mánuði geta þeir fengið ótakmarkaðan aðgang að innlendu og erlendu efni og gert hvað sem þeir vilja við það. „Fyrir andvirði eins geisladisks geturðu fengið þá alla,“ segir Engilbert. Erlend útgáfufyrirtæki hafa hingað til viljað læsa tónlist sinni til að henni yrði ekki dreift út um allt. Sú hugmyndafræði virðist nú vera að syngja sitt síðasta og má segja að menn hafi játað sig sigraða í baráttunni við netverja sem dreifa tónlist á ólöglegan hátt á Netinu. Engilbert telur að draga muni úr ólöglegu niðurhali á erlendri tónlist með breytingunum. „Svarið við ólöglegu niðurhali er að vera með nógu gott aðgengi á sanngjörnu verði.“ Bætir hann við að meira öryggi felist í því að kaupa tónlist á löglegan hátt. Bæði séu vírusar úr sögunni og gæðin oftast töluvert betri. Yfir fimmtíu þúsund notendur eru skráðir hjá Tónlist.is. Tvöföldun varð í sölu á síðunni á milli áranna 2007 og 2008. „Við erum hvergi nærri hættir og vefurinn er í stöðugri þróun,“ segir Engilbert.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira