Ný nefnd skoðar úrræði fyrir skuldara Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 24. júlí 2009 12:22 Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra og þingmaður Samfylkingar. Mynd/Anton Brink
Sett verður á fót nefnd til að endurskoða úrræði fyrir heimili í greiðsluerfiðleikum að því er kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Þá mun nefndin einnig leggja fram tillögur um leiðir til að styrkja stöðu lántakenda á fjármálamarkaði. Mun nefndin meðal annars endurskoða úrræði um greiðsluaðlögun og kanna hvort breyta þurfi þeim skilyrðum sem sem um úrræðin gilda. Þá mun hún kanna hvort meðferð greiðsluaðlögunnar eigi betur heima innan stjórnsýslunnar en sem verkefni dómstóla. Þá mun hún endurmeta reglu um að afborganir gangi fyrst til greiðslu kostnaðar og vaxta og fleiri atriði sem teljast sérstaklega íþyngjandi fyrir skuldara. Einnig mun hún leita leiða til að koma böndum á hámark innheimtukostnaðar lögmanna. Ekki þótti þörf á að koma á fót nýjum úrræðum vegna húsnæðisskulda, þar eð reglugerð sem sett var í júní veitir lánveitendum heimild til að fella niður skuldir einstaklinga án þess að afskriftin reiknist til skatts. Þannig geti lánastofnanir komið til móts við einstaklinga í miklum erfiðleikum án þess að grípa þurfi til greiðsluaðlögunar fyrir dómstólum. Nefndin er stofnuð að frumkvæði ráðherranefndar félags- og tryggingamálaráðherra, dóms- og kirkjumálaráðherra og viðskiptaráðherra sem hefur að undanförnu farið yfir aðgerðir stjórnvalda til hjálpar skuldsettum heimilum í landinu.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira