Gazza edrú í þrjá mánuði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. febrúar 2009 10:42 Paul Gascoigne. Nordic Photos / Getty Images
Paul Gascoigne segir í viðtali við enska fjölmiðla að hann hafi nú verið edrú í þrjá mánuði og að hann líti björtum augum á framtíðina. Gascoigne er nýkominn úr meðferð en hann hefur lengt mátt glíma við þunglyndi, áfengis- og eiturlyfjafíkn. „Ég var á leiðinni í hyldýpið en nú er framtíðin björt. Ég get ekki sagt að ég muni aldrei aftur drekka áfengi en segi þó að ég fékk mér ekki að drekka í dag og vonandi heldur ekki á morgun." Gascoigne komst í fréttirnar á síðasta ári er hann var þvingaður inn á geðspítala þar sem óttast var um líf hans. Hann sagði árið 2008 hafa verið það versta á hans ævi og viðurkenndi að hafa drukkið ótæpilega eftir að hann gekkst undir aðgerð í desember árið 2007. „Ég man ekki nákvæmlega af hverju ég fékk mér að drekka eftir aðgerðina. Ég man bara að það voru jól og mig langaði að fá mér drykk. Ég drakk nokkur vínglös og svo hélt það bara áfram." „Viku síðar var ég hættur að geta hugsað um sjálfan mig. Ég tékkaði mig því inn á hótel þar sem drykkjan versnaði til muna. Ég drakk hverja vínflöskuna á fætur annarri og litlar ginflöskur úr miníbarnum. En ég varð aldrei drukkinn - það er erfitt fyrir áfengissjúklinga." Hann óttaðist að hann myndi binda enda á líf sitt og hringdi því í Önnu, systur sína. Skömmu síðar kom starfsfólk hótelsins að honum sofandi í baðkarinu. „Ég var algjörlega niðursokkinn. Anna hélt að ég myndi vinna mér mein og það næsta sem ég vissi að fimm lögreglumenn drógu mig nakinn úr baðkarinu. Ég held að ég hafi beðið þá um leyfi til að klára baðið þar sem ég var ekki búinn að þvo hárið mitt." „Ég vildi ekki binda enda á líf mitt en ég var svo mikið niðri fyrir að ég sá ekki fyrir mér að ég gæti unnið mig út úr þessum aðstæðum." „Ég trúði þessu ekki. Ég var eitt sinn hetja allra landsmanna og var nú á geðspítala. Ég hafði aldrei skammast mín jafnmikið."
Enski boltinn Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Crystal Palace | Heimamenn geta losað sig af botninum Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjá meira