Innlent

Stjórnmálafræðiprófessor: Djúp stjórnarkreppa verði Icesave fellt

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Gunnar Helgi Kristinsson
Gunnar Helgi Kristinsson Mynd/Anton Brink
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir djúpa stjórnarkreppu blasa við ef Icesave málið fellur í þinginu í viðtali við fréttastofu RÚV.

„Það má segja að þá verði djúp stjórnarkreppa um stjórn landsins þar sem forysta landsins getur í raun og veru ekki komið sér saman um það hvernig bregðast á við brýnasta lífshagsmunamáli þjóðarinnar," segir Gunnar Helgi.

Hann segir stöðuna sem komin er upp í ríkisstjórninni óvenjulega.

„Ég held ekki frá lýðveldisstofnun höfum við ekki verið með jafn alvarlegt mál og aldrei jafn stóran hluta af ríkisstjórn sem hefur verið á móti stefnu stjórnarinnar í neinu máli," segir Gunnar.

Hann telur að ætli stjórnin að lifa það af ef málið fellur þurfi hún að fara aftur til Breta og Hollendinga og reyna að fá betri samning, sem Gunnar telur mjög vafasamt að hún geti fengið.

Hann telur líklegt að þjóðstjórn verði reynd ef ríkisstjórnin fellur. Annar möguleiki væri að efna til kosninga, sem Gunnar telur raunar að myndi ekki breyta miklu miðað við skoðanakannanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×