Viðskipti innlent

Nova kærir Tal

Farsímafyrirtæið Nova hefur ákveðið að kæra samkeppnisaðila sinn Tal fyrir meiðandi ummæli.

Í tilkynningu frá Nova segir að Sigmar Vilhjálmsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Tals, staðhæfi í grein í Morgunblaðinu í dag að sá sem hringir í Nova símanúmer þurfi að greiða fyrir símtalið þó ekki sé svarað í símann.

,,Þessi staðhæfing Sigmars er röng. Gjaldtaka hefst aðeins þegar svarað er í símann líkt og hjá öðrum símafyrirtækjum á Íslandi, hvort heldur sem biðtónninn er tónlist eða ekki."

Í tilkynningu segir einnig að Sigmar Vilhjálmsson hafi starfað á íslenskum fjarskiptamarkaði í um eitt ár. ,,Manni í hans stöðu ætti að vera ljóst að Vinatónaþjónusta Nova, sem hefur verið í boði síðan 1. desember 2007, virkar alls ekki með þeim hætti sem hann lýsir í grein sinni í Morgunblaðinu í dag."

Í ljósi þessa hefur Nova ákveðið að kæra Tal fyrir skaðleg og meiðandi ummæli. Nova segir Tal reyni með þessum hætti að koma af stað neikvæðri og skaðlegri umræðu um þjónustu Nova.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×