Fótbolti

Landsliðsþjálfarinn hætti eftir tvær vikur

AFP

Mohammad Mayelikohan, landsliðsþjálfari Írana í knattspyrnu, hefur sagt af sér eftir aðeins tvær vikur í starfi.

Forseti knattspyrnusambandsins í Íran hefur staðfest þetta og gaf það út að nýr landsliðsþjálfari yrði fundinn fyrir næsta sunnudag.

Mayelikohan tók við landsliðinu fyrir tveimur vikum eftir að goðsögnin Ali Daei lét af störfum, en hann hafði áður stýrt því í 18 mánuði árið 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×