Lamprecht vill eiga allan Geithellnadal 15. október 2009 06:30 Rudolf Lamprecht Mynd/Be
Félagið Heiðarlax hyggur á fiskirækt í Geithellnadal í Álftafirði og hefur í því skyni fest kaup á öllum jörðum sem falar hafa reynst í dalnum. Svisslendingurinn Rudolf Lamprecht, eigandi Heiðarlax, er umsvifamikill í fiskeldi víða um heim. Hann hefur ræktað fiskistofna í Heiðarvatni og í Vatnsá ofan við Vík í Mýrdal og hefur keypt fjölda jarða og jarðaparta þar og á nú mest allt svæðið. Hann virðist ætla sér það sama í Geithellnadal. Nokkrir landeigendur hafa þó gefið Lamprecht afsvar. Sérstakri yfirlýsingu frá Heiðarlaxi var þinglýst hjá sýslumanninum á Eskifirði þegar félagið keypti jarðirnar Kambsel og Geithella II. Kom fram að Heiðarlax teldi sér skylt að gefa yfirlýsinguna þar sem eigandi félagsins væri svissneskur ríkisborgari. „Kaup á viðkomandi fasteign eru nauðsynlegur þáttur í áframhaldandi starfsemi félagsins og mun fela í sér talsverða atvinnusköpun á svæðinu ásamt því að fyrirhugað er að sinna þjónustu í tengslum við veiðiréttindi er fram líða stundir,“ segir í yfirlýsingunni. Lamprecht hefur einmitt opnað fyrir veiðileyfasölu í Vatnsá eftir uppræktunarstarf. Bæði lax og silungur er í Geithellnaá. Fram til þessa hefur veiðin verið nýtt af jarðeigendum sjálfum. Einnig er arður af hreindýrum. Auk fyrrgreindra jarða í Geithellnadal hefur Lamprecht hefur þegar keypt jörðina Múla III, hálfa jörðina Múla II og jörðina Virkishólasel. Ekki hafa fengist upplýsingar um þær fjárhæðir sem Lamprecht greiddi fyrir jarðirnar í Geithellnadal. Þess má geta að málaferli urðu eftir að þáverandi landbúnaðarráðherra, Guðmundur Bjarnason, seldi ríkisjörðina Kambsel til þeirra Atla Árnasonar og Helga Jenssonar skömmu áður en hann lét af af embætti á árinu 1998. Söluverðið var þá 750 þúsund krónur. Kambsel var seld án auglýsingar til þeirra Atla og Helga sem áttu fyrir Geithella II. Þeir sem kærðu söluna töpuðu málinu. „Almennt séð ætla ég ekki að fordæma menn fyrirfram þó að þeir séu að sölsa undir sig jarðir, og ef slík jarðakaup að einhverju leyti viðhalda starfsemi sem hefur verið þar eða setur í gang eitthvað sem fjölgar útsvarsgreiðendum og eykur tekjur sveitarfélagsins þá myndi ég almennt að segja að menn myndu að því leytinu til fagna þessu heldur en hitt,“ segir Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps.
Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira