Mjög raunhæf skilyrði fyrir ESB aðild Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. janúar 2009 14:37 Eiríkur Bergmann Einarsson.
Einungis þarf að semja sérstaklega um tvö til þrjú skilyrði af þeim níu sem sett eru fyrir inngöngu í Evrópusambandið í ályktun Framsóknarflokksins. Þetta segir Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs á Bifröst.Þrjú skilyrði sem semja þarf um Eiríkur telur ályktun framsóknarmanna vel geta verið raunhæfa. „Hún getur alveg verið það. Það er í sjálfu sér ekkert í þessum skilyrðum sem ekki er vanalegt að menn semji um í aðildarviðræðum," segir Eiríkur. Hann segir ekkert vera í skilyrðum framsóknarmanna sem gangi gegn því grundvallarprinsippi að menn taki þátt í því samstarfi sem Evrópusambandið standi fyrir. „Maður verður líka að gera sér grein fyrir því að öll ríki sem hafa samið um samstarf í Evrópusambandinu hafa haft einhverja tiltekna hagsmuni sem þeir hafa getað samið um sérlausnir út af. Það er ekki til sá aðildarsamningur þar sem engu hefur verið hnikað til," segir Eiríkur. Eiríkur telur að þau skilyrði í ályktun Framsóknarmanna sem semja þyrfti um séu skilyrðin varðandi sjávarútvegsstefnu og skilyrði um varanlegan rétt Íslendinga til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum. Þá segir Eiríkur að hugsanlega þyrfti að semja um skilyrði varðandi það að fæðuöryggi þjóðarinnar yrði tryggt og viðurkennd yrði nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar. Eiríkur segir að þetta atriði sé hins vegar óskýrt í ályktun framsóknarmanna og það þurfi að skilgreina betur. Eiríkur segir að önnur skilyrði sem nefnd eru í ályktun framsóknarmanna séu nú þegar til staðar og því þurfi í raun ekkert að semja um þau sérstaklega.Sterk rök fyrir að Íslendingar stjórni fiskveiðum „Varðandi þetta með sjávarútveginn að þá gleyma menn því oft að fyrir um 10 árum komu fulltrúar ESB fram með tiltekna hugmynd sem var að gera fiskinn við Ísland að sérstöku stjórnsýslusvæði innan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar. Það voru færð fyrir þessu sömu rök og að gera landbúnað norðan 62. breiddargráðu frábrugðin landbúnaði sunnan 62. breiddargráðu. Það varð til hugmyndin um heimskautalandbúnað. Þar sem aðstæður á einu svæði voru frábrugðin því sem annars staðar giltu," segir Eiríkur. Hann segir að þarna séu komin rök fyrir því að beita sjávarútvegsstefnunni með öðrum hætti þannig að yfirstjórn veiðanna verði eftir sem áður í höndum Íslendinga. „Það sem hérna kemur fram hjá framsóknarmönnum passar undir þessa hugmynd. En hvort að við náum því markmiði er engin leið til að segja til um. En það er í það minnsta engin leið til að segja fyrir um fyrr en í aðildarviðræðum," segir Eiríkur.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Sjá meira