Röddin á bak við Sollu stirðu 16. desember 2008 12:15 Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir.
Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, 15 ára, ljáir íslensku Sollu stirðu rödd sína. Vísir hafði samband við þessa hæfileikaríku stúlku og spurði hvernig hún fékk Latarbæjarstarfið. „Ég fór fyrst í talsetningu fyrir barnaefni í lok ársins 2003 og var beðin að fara í prufu fyrir litla stelpu í jólamyndinni það ár sem hét „Álfur" minnir mig," svarar Ólöf. „Svo var ég látin vita að prufan hefði verið notuð og þá svona má segja að minn ferill í talsetningu hafi byrjað." „Ég er búin að gera ýmislegt í gegnum árin og meðal annars var ég beðin árið 2005 að fara í prufu fyrir Sollu stirðu. Ég veit ekki alveg hvað það voru margar stelpur sem tóku þátt En ég var allavega látin syngja Bing bang lagið og segja nokkrar setningar úr þáttunum." „Nokkru síðar var hringt í mig og ég var beðin að koma í stúdíóið þar sem þættirnir eru teknir upp og söngurinn líka. Ekki svo löngu eftir það fékk ég að vita að ég hefði fengið hlutverkið." Kynntist þú leikurum í Latabæ? „Tja, nei ég get svo sem ekki sagt það. Það er yfirleitt bara einn inni í einu, en stundum eru tveir eða fleiri. En það fer alfarið eftir því hvað þú ert að gera.„Maður kynnist bara þeim sem taka þættina upp og leikstýra þeim, sem er alls ekki verra. En aftur á móti um jólin/áramótin 2005 þá var jólaball hjá forsetanum á Bessastöðum og ég fór með Magnúsi Scheving, í búning Sollu stirðu og hann sem íþróttaálfurinn að skemmta þar."„Það var ein skemmtilegasta lífsreynsla sem ég hef upplifað. Það var mjög gaman. Þar fékk ég að kynnast Magga, vera Solla stirða í nokkra tíma, og heilsa upp á Ólaf Ragnar Grímsson og Dorrit."Hvað er framundan hjá þér? „Ég er búin að vera mjög upptekin undanfarið, bæði að sýna í Skilaboðaskjóðunni og "Réttu leiðinni" sem er jólaleikrit sem er sýnt í Iðnó."„Svo komst ég áfram í prufunum fyrir Sound of music og bíð núna spennt eftir því að komast í næstu prufur sem verða í byrjun janúar."„Ég hef verið í pínu pásu frá talsetningunni akkurat útaf því að ég hef verið svo upptekin uppá síðkastið. Ég æfi handbolta í þokkabót og er í Tónó (Tónlistarskóli Reykjavíkur)."„Eftir áramót fæ ég vonandi fleiri verkefni í tengslum við talsetninguna," segir Ólöf að lokum.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira