Íslenski boltinn

Valur tapaði með tveggja marka mun í Hvíta-Rússlandi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Einar Marteinsson var í byrjunarliði Vals í dag.
Einar Marteinsson var í byrjunarliði Vals í dag.

Íslandsmeistarar Vals léku í dag fyrri leik sinn gegn Bate Borisov í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fór fram ytra og vann Bate 2-0 sigur.

Seinni viðureignin fer fram á Vodafone-vellinum á miðvikudaginn í næstu viku en ljóst er að brekkan verður brött fyrir Valsmenn í þeim leik.

Bate skoraði bæði mörkin í dag á síðustu tuttugu mínútum leiksins.

Byrjunarlið Vals: Kjartan Sturluson, Einar Marteinsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Barry Smith, Rene Carlsen, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Rasmus Hansen, Baldur Bett, Bjarni Ólafur Eiríksson, Guðmundur Benediktsson, Helgi Sigurðsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×