10 lélegustu liðin í sögu úrvalsdeildarinnar 4. apríl 2008 10:08 Paul Jewell hefur ekki náð að gera kraftaverk á Pride Park NordcPhotos/GettyImages
Derby County varð á dögunum fyrsta liðið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að falla í marsmánuði. Liðið getur enn forðað sér frá því að setja met yfir fæst stig fengin á einni leiktíð, en það bjargar liðinu ekki frá því að lenda inn á topp 10 yfir lélegustu liðin frá stofnun úrvalsdeildarinnar árið 1992. 10. Watford 2007 Aidy Boothroyd er einn af efnilegustu knattspyrnustjórunum á Englandi, en hann náði ekki að gera mikið úr slöku liði Watford eþgar það var síðast í úrvalsdeildinni. Meiðsli Marlon King og salan á Ashley Young til Aston Villa urðu ekki til að hjálpa liðinu, sem náði aðeins 28 stigum í úrvalsdeildinni. 9. Swindon 1994 Swindon er oft álitið eitt versta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar, en liðið náði reyndar að næla sér í 30 stig árið 1994. Þá voru reyndar spilaðir 42 leikir á tímabili í úrvalsdeildinni og vaskleg framganga Jan-Aage Fjortoft varð oftar en einu sinni til að bjarga liðinu frá glötun. 8. West Brom 2003 West Brom mátti þakka fyrir að falla í skuggann af arfaslöku liði Sunderland þegar það féll árið 2003, en þá náði það aðeins í 2003. Það var Gary Megson sem var stjóri West Brom í þá daga, en hann stendur nú í fallbaráttu með Bolton. 7. Bradford 2001 Bradford náði að forðast fall með aðeins 34 stig leiktíðina á undan og því hefðu stuðningsmenn liðsins kannski átt að búa sig undir áfall leiktíðina 2001. Þrátt fyrir að fá til sín stór nöfn á borð við Stan Collymore og Benito Carbone, skítféll liðið með aðeins 26 stig og er nú þremur deildum fyrir neðan úrvalsdeildina. 6. Watford 2000 Þú veist að þú átt erfitt tímabil framundan þegar stærstu leikmannakaupin þín sumarið áður er Nordin Wooter fyrir 950,000 pund. Graham Taylor gerði kraftaverk þegar hann kom liðinu í úrvalsdeildina, en þegar þangað var komið var kúturinn tómur. Niðurstaðan 24 stig - og nei - Wooter sló ekki í gegn. 5. Leicester 1995 Leicester lenti reyndar ekki í neðsta sæti deildarinnar þetta árið en fékk samt aðeins 29 stig í 42 leikjum. Liðið komst í úrvalsdeildina eftir að hafa farið í umspil í B-deildinni þrjú ár í röð, en veran meðal þeirra bestu var ekki langvarandi. 4. Ipswich 1995 Swindon var þess vafasama heiðurst aðnjótandi þessa leiktíð að vera með jafnvel enn verri árangur en Leicester sem við greindum frá í atriði númer fimm. Liðið fékk aðeins 27 stig í 42 leikjum og hörmuleg leiktíð liðsins kórónaðist í 9-0 tapi gegn Manchester United á Old Trafford - metsigur í sögu úrvalsdeildarinnar. 3. Sunderland 2003 Þá er komið að þætti Sunderland í þessari upptalningu. Sunderland er á margan hátt lélegasta liðið frá stofnun úrvalsdeildarinnar, þökk sé tveimur afleitum leiktíðum á þremur árum. Sú fyrri kom árið 2003 þegar lærisveinar Mick McCarthy fengu bara 19 stig og urðu fyrsta liðið til að fá innan við 20 stig frá stofnun úrvalsdeildarinnar. En þar með var ekki öll sagan sögð... 2. Sunderland 2006 Hafi leiktíðin 2003 verið ömurleg fyrir stuðningsmenn Sunderland, var leiktíðin 2006 hálfu verri. Liðið setti afgerandi met með því að fá aðeins 15 stig alla leiktíðina og var liðið svo arfaslakt að stuðningsmenn þess hafa eflaust varpað öndinni léttar þegar flautað var til leiksloka í síðasta leiknum á tímabilinu. 1. Derby 2008 Hverjum hefði dottið í hug að met Sunderland yfir lélegustu leiktíð í sögu úrvalsdeildarinnar yrði svo fljótt í hættu? Leiktíðin er enn ekki búin hjá Derby, en það verður að segjast eins og er að liðið er ekki beint að gera sig líklegt til að fá þau fimm stig sem það vantar til að slá ekki met Sunderland. Billy Davies gerði vel að koma liðinu upp í úrvalsdeildina, en eftirmaður hans Paul Jewell tók einfaldlega of seint við liðinu til að geta bjargað því úr forarpyttinum.
Enski boltinn Mest lesið Segir að eitrað hafi verið fyrir leikmönnum liðsins Fótbolti Hulda Elma vann Hengil Ultra á brautarmeti Sport Arnór Atla valinn þjálfari ársins Handbolti Má ekki koma inn í íþróttahús í tíu mánuði Körfubolti Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Íslenski boltinn Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Íslenski boltinn Taiwo Badmus staðfestur hjá Stólunum: „Ég er kominn heim“ Körfubolti Liverpool hækkar tilboð sitt Enski boltinn Snýr aftur til Íslands betri en nokkru sinni áður Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool hækkar tilboð sitt Man. United gat ekki neitt en græddi samt meiri pening Leikmenn Tottenham sagðir öskuillir og í uppreisnarhug eftir brottrekstur Ange Rekinn frá Tottenham Segir nýja Brassann hjá Chelsea geta orðið eins góður og Lamine Yamal Dómari í enska boltanum segist hata VAR Liverpool byrjar undirbúningstímabilið á móti Stefáni Teiti Hættur eftir að hafa spilað með 42 liðum Kerkez spilar ekki með Ungverjum: Sagður á leið til Liverpool að skrifa undir Liverpool hafnaði tilboði Barcelona Sonur Bruno Fernandes mætti á æfingu hjá FH Stjörnur Chelsea spiluðu saman í unglingaliði City Mbuemo fer fram á fimmfalt hærri laun Rio Ferdinand: Ég er skotskífa vegna gengis Man United Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Brady byggir nýjan leikvang fyrir Willum og Alfons Margir leikmenn á förum frá Arsenal Segist ekki vilja taka tíuna hjá Liverpool af Mac Allister City búið að semja um kaupverð á Reijnders Enska landsliðið æfir í upphituðum tjöldum til að undirbúa sig fyrir HM Sancho samdi ekki við Chelsea sem þarf að borga sekt Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Mbuemo sagður vilja fara til Manchester United Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Man. City vill fá bakvörð frá Úlfunum Beckham óánægður með hegðun leikmanna Manchester United Hákon mun slást við Kelleher um stöðuna Rauðu djöflarnir staðfesta kaup á Cunha Sjá meira