Enski boltinn

Hermann í súrefnisklefa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth.
Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images

Hermann Hreiðarsson og John Utaka eru nú í kapphlaupi við tímann um að ná sér góðum fyrir leik Portsmouth gegn WBA í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley um helgina.

Hermann fékk skurð á fæti í leik Portsmouth og Wigan um helgina og þurfti að fá þrjú spor saumuð til að loka skurðinum. Sjálfur sagði hann í samtali við Vísi í gær að helmingslíkur á því að hann myndi ná því að spila leikinn.

Til að flýta fyrir batanum verða þeir Hermann og Utaka í súrefnisklefa nú í vikunni til að flýta fyrir batanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×