Lífið

Konukvöldið í kvöld

Jónsi verður kynnir kvöldsins.
Jónsi verður kynnir kvöldsins.
Konukvöld Létt Bylgjunnar verður haldið í Smáralind í kvöld, miðvikudagskvöldið 12. mars 2008. Á kvöldinu verða verslanir opnar til kl. 23 og „Römblu" stemmning ríkir á göngum hússins. Í fyrra komu 3500 konur á þetta kvöld og von er á enn fleiri konum í kvöld.

Jónsi verður gefstgjafi kvöldsins. Afrekskona Létt Bylgjunnar verður heiðruð, og glæsilegt happdrætti verður haldið þar sem vinningar verða ferð fyrir tvo í konuferðina Ný og Betri með Úrval Útsýn á Tenerife í apríl, árskort í Hreyfingu, 30 þúsund króna gjafabréf frá Smáralind og gjafakort frá Þjóðleikhúsinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.