Róttæki laganeminn blæs á gagnrýni samnemenda Breki Logason skrifar 27. nóvember 2008 11:32 Katrín Oddsdóttir laganemi við Háskólann í Reykjavík.
Katrín Oddsdóttir laganemi við Háskólann í Reykjavík vakti mikla athygli fyrir vasklega framgöngu sína á mótmælunum á Austurvelli um síðustu helgi. Þar hélt hún ræðu sem fékk fínar undirtektir viðstaddra. Fjórir samnemendur Katrínar skrifa grein í Morgunblaðið í dag þar sem þeir segjast vonast til þess að Katrín titli sig ekki sem laganema á opinberum vettvangi aftur. „Mér finnst þetta áhugavert en um leið sorglegt. Þetta er svolítið myndbirting þess sem ég var að tala um í ræðunni minni. Það er að segja að það er rosaleg mótstaða við það að fólki leyfi sér að gagnrýna hvernig hlutirnir hafa verið og hvernig þeir æxluðust. Þetta eiginlega dæmir sig bara sjálft," segir Katrín aðspurð um grein samnemenda sinna í Morgunblaðinu. Það eru fjórir piltar sem skrifa greinina og gagnrýna málflutning Katrínar harðlega. Þar segja þeir meðal annars að útúrsnúningar hennar og valdaránshótanir eigi ekkert skylt við þá lögfræði sem kennd er við lagadeild Háskólans í Reykjavík. „Í fyrsta lagi þá má bara túlka lög og hver gerir það á sinn hátt. Og í öðru lagi þá eru ekki einhverjir fjórir strákar í HR að fara að segja mér að ég megi ekki kalla mig laganema, það er ekki að fara að gerast," segir Katrín. Ræða Katrínar var einnig birt á vef skólans og hafa nemendur þar viljað hana af vefnum. „Ritskoðun getur aldrei verið af hinum góða, það er val skólans að birta þetta opinberlega." Katrín segist hafa fengið mikið af jákvæðum viðbrögðum við ræðu sinni. „Það má búast við því þegar maður segir eitthvað sem snertir svona við fólki, að það rísi upp öfl undan einhverjum steinum sem vilja ekki sjá neinu breytt hérna. Það er mjög sorglegt en þeir sem eru að gagnrýna þetta aðhyllast allir sömu stjórnmálaskoðanirnar. Það er sorglegt að venjulegar umræður og skoðanir séu ekki frjálsar."
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira