Hallgrímur meiddist er hann fagnaði eigin marki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. maí 2008 16:11 Hallgrímur Jónasson kemur Keflvíkingum yfir í gær.
Hallgrímur Jónasson þurfti að fara snemma meiddur af velli í leik Keflavíkur og ÍA í gær skömmu eftir að hann kom Keflavík yfir í leiknum. Ekki vildi betur til en svo að Hallgrímur meiddist er hann fagnaði markinu sínu. „Ég fékk tvö þung högg á gagnaugað og var hættur að sjá til hliðanna, ég sá bara beint áfram," sagði Hallgrímur í samtali við Vísi. „En þegar allt byrjaði að hringsnúast taldi ég að ég þyrfti að láta skipta mér út af." „Ég fékk reyndar fyrra höggið þegar við fögnuðum markinu. Gummi (Guðmundur Steinarsson) stökk á (Patrik) Redo og hann skallaði mig beint á gagnaugað. Í seinna skiptið fékk ég svo olnbogaskot frá leikmanni ÍA en það var algjört óviljaverk." „Það er nú samt alltaf gaman að skora en ég ætti kannski að gera minna af því ef þetta eru afleiðingarnar," sagði hann í léttum dúr. Viðureignir Keflavíkur og ÍA undanfarin ár hafa verið æði skrautlegar en í fyrra skoraði Bjarni Guðjónsson afar umdeilt mark frá miðju. Sá leikur virtist sitja mikið í Keflvíkingu því þeim gekk illa það sem eftir lifði sumars. Hallgrímur viðurkennir að það hafi verið sætt að vinna ÍA nú. „Að vissu leyti er það svo. En við erum samt ekki mikið að pæla í því sem gerðist áður, það er bara búið og gert." Hann bætti við að hann væri mun betri í dag og ætti ekki von á því að missa af næsta leik Keflavíkur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira