Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP sem gefur út Eve Online, hefur verið valinn fjórði áhrifamesti maður heims innan þess geira sem starfar við fjölspilunarleiki á netinu.
Það var tölvutímaritið Beckett Massive Online Gamer sem hélt könnun á meðal fólks í bransanum og komst að þessari niðurstöðu. „Ég er einhver persónugervingur CCP, það er ekki ég sjálfur sem geri þetta," segir Hilmar um þessa viðurkenningu.
„Að sjálfsögðu er þetta frábær heiður fyrir fyrirtækið að vera sett þetta hátt á þennan lista," segir hann.
Búist er við að sjö hundruð manns komi hingað til lands um helgina vegna Fanfest-hátíðar Eve Online sem verður haldin í fimmta sinn í Laugardalshöll. Einnig er von á tæplega eitt hundrað blaðamönnum alls staðar að til að fjalla um viðburðinn.
Talið er að hátíðin færi til landsins um 120 milljónir króna í gjaldeyristekjur sem veitir ekki af í hinu erfiða efnahagsástandi.