Íslenski boltinn

Gunnar Már undir smásjá landsliðsþjálfarans

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gunnar Már hefur skorað sex mörk í ellefu leikjum fyrir Fjölni það sem af er í Landsbankadeildinni.
Gunnar Már hefur skorað sex mörk í ellefu leikjum fyrir Fjölni það sem af er í Landsbankadeildinni.

Gunnar Már Guðmundsson hefur vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína með Fjölni í Landsbankadeild karla í sumar. Fjölnismenn hafa komið mjög á óvart í deildinni og sitja í þriðja sætinu.

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, sagði í samtali við Stöð 2 Sport í kvöld að hann væri mjög hrifinn af Gunnari og hans nafn væri klárlega á sínu blaði.

Ólafur sagði að hann hefði verið nálægt því að velja Gunnar í hóp sinn fyrir æfingamót sem fram fór á Möltu fyrr á þessu ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×