Þurfum nauðsynlega á þremur stigum að halda 14. október 2008 16:35 Ólafur Jóhannesson Mynd/E. Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari segir lið sitt verða sókndjarfara gegn Makedóníu annað kvöld en verið hefur í leikjunum í undankeppni HM til þessa. Hann er vongóður um að Grétar Rafn Steinsson geti spilað. "Við ætlum að byrja leikinn á því að fara dálítið hátt á þá og sjá hverju það skilar. Við erum á heimavelli og þurfum nauðsynlega á þremur stigum að halda," sagði Ólafur í samtali við Vísi í dag. Hann ætlar að halda sig við svipað leikskipulag og hann hefur notað í síðustu leikjum. "4-5-1 leikkerfið hefur reynst okkur ágætlega. Það hefur verið ágætis framför í þessu hjá okkur og ég hef ekkert verið ósáttur við undanfarna leiki," sagði Ólafur. Hann gerði upp leikina þrjá í stuttu máli og vill meina að liðið hafi bara vantað smá heppni. "Við gerðum ágætlega í Noregi og fengum þar verðskuldað stig í leik sem við vorum hársbreidd frá því að stela í lokin (með stangarskoti Veigars Páls). Mér fannst við alls ekki eiga skilið að tapa á móti Skotunum og eftir þann leik vorum við frekar svekktir. Leikurinn við Holland var svo ágætur að mínu mati en þar var svekkelsið að við næðum ekki að nýta þau þrjú til fjögur dauðafæri sem við fengum." Ólafur gerir sér vel grein fyrir því að þrátt fyrir allt eru það stigin sem telja. "Þetta snýst auðvitað um að ná úrslitum og það er það sem við erum að reyna. Þetta þarf að fara að detta fyrir okkur gerir það á endanum ef menn halda áfram að leggja sig alla fram." Andstæðingar íslenska liðsins á morgun eru ekki sérlega þekkt stærð í knattspyrnuheiminum, en Ólafur segir liðið vera mjög sterkt. "Þetta er vel skipulagt lið með margar útfærslur á leik sínum, svo það er dálítið erfitt að átta sig á þeim. Þetta eru sterkir, flinkir og vel skólaðir knattspyrnumenn. Makedónía er að mínu mati sterkara lið en Skotland og Noregur - og þeir eru betri en við - en við erum á heimavelli og það á að hjálpa okkur." Ólafur telur góðar líkur á að Grétar Rafn Steinsson muni spila leikinn annað kvöld, en hann gat ekki leikið gegn Hollendingum vegna meiðsla. "Bati hans hefur verið skjótari og betri en við þorðum að vona, svo ég tel meiri líkur en minni á að hann verði með," sagði Ólafur.
Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Fleiri fréttir Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Sjá meira