Þetta er körfubolti - ekki kalda stríðið 1. ágúst 2008 14:43 Becky Hammon er 31 árs gömul og er gjarnan kölluð "Big Shot Becky" vegna vasklegrar framgöngu sinnar þegar mikið er undir NordcPhotos/GettyImages
Bandaríska körfuboltakonan Becky Hammon hefur valdið nokkru fjaðrafoki í heimalandi sínu eftir að hún ákvað að leika fyrir hönd Rússa á Ólympíuleikunum. Sjálf segir hún að þessi ákvörðun sé sú amerískasta sem hún hafi tekið á ævi sinni. Hammon leikur með liði San Antonio Silver Stars í WNBA deildinni en hún leikur einnig með liði CSKA í Moskvu þar sem hún skrifaði undir fjögurra ára samning upp á 2 milljónir dollara í fyrra. Hammon hefur aldrei hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, þrátt fyrir að vera orðin einn besti leikmaður í WNBA deildinni. Hún varð önnur í kjörinu a verðmætasta leikmanni deildarinnar í fyrra og skoraði rúmlega 17 stig að meðaltali í leik. "Það var erfið ákvörðun að spila fyrir hönd Rússa, en ég veit að ég er að gera það á réttum forsendum," sagði Hammon í samtali við Reuters, en hún hefur fengið rússneskt vegabréf. "Ég veit alveg hvað mér finnst um landið mitt. Ég elska Ameríku og við erum hinn frjálsi heimur. En frelsi hefur aldrei verið ókeypis, frelsi kostar," sagði Hammon. Anne Donovan, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna í körfubolta er ekki sammála þessu. "Ef þú spilar í landinu, ert uppalin í landinu og klæðist svo rússneska landsliðsbúningnum - geturðu ekki talist sérstakur föðurlandsvinur," sagði Donovan. Hammon segir einfaldlega að bandaríska liðið hafi haft næg tækifæri til að velja sig í landsliðið - og byggir ákvörðun sína á því að hana hafi alltaf dreymt um að spila á Ólympíuleikum. "Ég hef aldrei spilað landsleik áður og bandaríska liðið fékk nægan tíma til að gefa mér tækifæri," sagði Donovan, sem var ekki í upprunalegum 23 manna hópi bandaríska landsliðsins "Þetta er körfubolti - þetta er ekki kalda stríðið. Fólk má ekki missa sig í þjóðernisrembingi og fyrir mér er það mikilvægara að fá tækifæri til að spila á ÓL en að hlusta á gagnrýnina sem því fylgir," sagði Hammon.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Sjá meira