KSÍ harmar ummæli þjálfara Völsungs 9. júlí 2008 14:25 Jónas Hallgrímsson. Mynd/123.is/volsungur
Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Jónasar Hallgrímssonar, þjálfara Völsungs á Húsavík í 2. deildinni. Jónas hyggst láta af störfum vegna óánægju með dómgæslu í leikjum liðsins í sumar. „Þeir eru bara hlæjandi og eyðileggja leikinn og eru bara stoltir af því," sagði Jónas meðal annars um dómarana í viðtali við vefsíðuna Fótbolti.net. „Ég er búinn að lenda í KSÍ áður. Það er búið að hóta okkur áður að ef við höldum ekki kjafti þá skuli KSÍ sjá til þess að fótboltinn á Húsavík eigi sér ekki viðreisnar von," sagði Jónas um KSÍ en hér neðst er tengill á frétt um ummæli hans. Hér má sjá yfirlýsinguna frá KSÍ: „Knattspyrnusamband Íslands harmar þau ummæli sem Jónas Hallgrímsson, þjálfari Völsungs, lætur hafa eftir sér í fjölmiðlum varðandi dómara, önnur félagslið og aðra þá er að knattspyrnu koma á Íslandi og vísar þeim algerlega á bug. Mjög alvarlegar ásakanir koma fram í ummælum Jónasar og alveg ljóst að undir þeim verður ekki setið án viðbragða. Samskipti KSÍ við Völsung hafa verið með miklum ágætum, þar hefur verið unnið gott starf og hafa þaðan komið margir af bestu knattspyrnumönnum landsins í gegnum árin. Sorglegt er því að þjálfari félagsins ráðist fram með rakalausum fullyrðingum og ásökunum sem beint er gegn dómurum, aðildarfélögum og aðilum innan KSÍ og geta á engan hátt talist settar fram af jafnvægi og yfirvegun." Fyrr í dag sendi knattspyrnudeild Völsungs frá sér þessa yfirlýsingu: „Stjórn knattspyrnudeildar Völsungs biður hlutaðeigandi aðila, KSÍ, knattspyrnudómara, leikmenn, forráðamenn og stuðningsmenn knattspyrnuliða á Íslandi afsökunar vegna þeirra ummæla sem höfð voru eftir þjálfara Völsungs Jónasi Hallgrímssyni í viðtali á fotbolti.net í gær. Umrætt viðtal er ekki með vitund, vilja né á ábyrgð knattspyrnudeildar Völsungs. Knattspyrnuráð Völsungs."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Fleiri fréttir Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Sjá meira