Íslenski boltinn

KR-ingar óhressir með Skagamenn

Kristján stendur hér í ströngu með KR
Kristján stendur hér í ströngu með KR Mynd/Anton

KR-ingar eru óánægðir með vinnubrögð Skagamanna sem vilja fá markvörðinn Kristján Finnbogason lánaðan í Landsbankadeildinni í sumar. Þetta kom fram í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Skagamenn eru í markvarðarleit vegna meiðsla Páls Gísla Jónssonar sem missir fyrir vikið af upphafi Íslandsmótsins. Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA tjáði fréttastofu það í dag að hann hefði verið búinn að fá kanadískan markmann sem leikur í Englandi en hann fékk svo ekki atvinnuleyfi þar sem fyrir í ÍA eru þrír Króatar.

Félögum er aðeins leyfilegt að hafa þrjá leikmenn utan Evrópubandalagsins í leikmannahópnum. Því hafi ÍA snúið sér til KR og beðið um að fá Kristján Finnbogason á lánssamning.

Kristján sagði við fréttastofu að hann vildi fara til ÍA en hann vill ólmur fá að spila þar sem hann vermdi varamannabekkinn meginpart síðasta sumars og senn líði að lokum síns ferils. Kristján kvaðst þó fyrst og fremst vilja vera áfram hjá KR en vill fara til ÍA ef hann fær að spila reglulega.

Rúnar Kristinsson formaður knattspyrnudeildar KR sagði félagið ekki hafa í hyggju að lána Kristján enda sé þriðji markvörður meistaraflokks í láni hjá Haukum. Rúnar kvaðst óánægður með vinnubrögð Skagamanna sem hefðu farið gegn knattspyrnulögum og sett sig fyrst í samband við leikmanninn en ekki félagið eins og reglur kveða á um.

Rúnar árétti þó að ekki væru nein illindi milli félaganna og hefði hann í góðu tjáð Gísla Gíslasyni, formanni knattspyrnuráðs ÍA hvað honum finndist um þessi vinnubrögð.

Rúnar er ósáttur við að Skagamenn séu að hrófla í leikmönnum sínum korteri fyrir mót og skapi þannig hugsanlega óánægju leikmannsins. Kristján fundar nú með KR-ingum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin en Rúnar segir að í fljótu bragði sé lausn ekki í sjónmáli.

Þess má að lokum geta að Stefán Logi Magnússon, aðalmarkvörður KR, er fingurbrotinn og getur sem stendur ekki leikið með liðinu. Hann er þó væntanlægur í slaginn á ný áður en Landsbankadeildin hefst þann 11. maí.

Á meðan Stefán er frá vegna meiðsla kemur það því í hlut Kristjáns að standa í marki KR og hann verður milli stanganna á laugardaginn þegar KR mætir einmitt ÍA í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×