Lekanda- og klamydíutilfellum fjölgar mikið 5. júlí 2007 11:43 Helmingur þeirra sem greindust með HIV og alnæmi eru af erlendu bergi brotnir. MYND/VG
Mun fleiri greindust smitaðir af lekanda á síðasta ári miðað við árin þar á undan samkvæmt nýútkominni ársskýrslu Landlæknisembættisins. Alls greindust 31 einstaklingur með lekanda á síðasta ári en árið þar á undan voru þeir 19. Þá greindust einnig fleiri klamydíutilfelli á síðasta ári miðað við fyrra ár. Samkvæmt árskýrslu Landlæknisembættisins fyrir árið 2006 varð mikil aukning á lekandasmiti á síðasta ári. Fram kemur í skýrslunni að meirihluti smitaðra hafi smitast á Íslandi sem sé nýlunda miðað við fyrri ár þegar nánast allt lekandasmit átti uppruna sinn erlendis. Á síðustu tveimur árum hafa 50 lekandasmit greinst hér á landi en á árunum 2001 til 2004 greindust alls 23 tilfelli. Þá greindust 1.729 klamydíutilfelli sem er væg aukning miðað við árið á undan þegar 1.622 tilfelli voru greind. Sýkingin greindist oftar hjá konum en körlum og er algengust í aldurshópnum 20 til 24 ára. Fólk á aldrinum 15 til 19 ára fylgdi í kjölfarið. Þá greindust 11 sjúklingar með HIV-sýkingu. Þar af átta karlar og þrjár konur. Tveir karlar og ein kona greindust með alnæmi og einn karlmaður lést af völdum sjúkdómsins á árinu. Í skýrslunni kemur fram að HIV-sýking og alnæmi sé enn sjaldgæfur sjúkdómur hér á landi. Hlutur gagnkynhneigðra fer vaxandi ár frá ári og helmingur þeirra sem greindust í fyrra eru af erlendu bergi brotnir.
Mest lesið Bylgja Dís er látin Innlent Gestur Guðmundsson er látinn Innlent Opinbera bréf Trumps til Epsteins Erlent Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Innlent Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Innlent Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Erlent Fjórar ungar vinkonur fórust í eldsvoða í Noregi Erlent Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Innlent „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Innlent Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Innlent Fleiri fréttir Verið ættleiddur af Íslendingum Fyrsti dagur Kvikmyndaskólans: „Það besta sem hefur gerst fyrir skólann síðan í apríl“ Hækka hámarksgreiðslur um hundrað þúsund krónur Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Tveir fluttir til aðhlynningar eftir árekstur á Suðurlandsvegi Tekist á um fjárlög, lykkjumálið og aleigan í rafmynt Einn bílstjóri án leyfis og skráningar „Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Skjálfti upp á 3,3 í Vatnafjöllum Afnemur æviskipanir varasaksóknara eftir mál Helga Magnúsar Gul úrkomuviðvörun á Austfjörðum og á Suðausturlandi Gestur Guðmundsson er látinn Breski sundkappinn kominn í land og lofsyngur Íslendinga Háskólinn hafi ekki breytt stefnu sinni um inntöku alþjóðlegra nema Hallar á karla í fjárlagafrumvarpi Féll af baki íslensks hests og fær engar skaðabætur Óttast verðhækkanir sem bitni á konum og barnafjölskyldum Ósáttur við skattana og hefði viljað loka fjárlagagatinu Fjórir af hverjum fimm vilja setja árlegt hámark á hælisleitendur Ólík sýn á nýja fjárlagafrumvarpið Bylgja Dís er látin Fundu villuráfandi ferðamenn nærri skálanum í Landmannalaugum „Allir vilja alltaf meira“ Reikna með fimmtán milljarða halla á næsta ári Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Bjargað af efri hæð eftir að eldur kom upp á jarðhæð í íbúðarhúsi Leitað að manni með öxi Sjá meira