Hálfur Íslendingur semur fyrir stórstjörnur Samdi lag fyrir Beyonce 5. febrúar 2007 10:00 Amund Bjørklund Hálf-íslenski lagahöfundurinn og upptökustjórinn Amund á mikilli velgengni að fagna í Noregi og á heimsvísu.
Lagið Irreplacable með söngdrottningunni Beyonce hefur trónað í efsta sæti Billboard Hot 100-listans síðastliðnar sjö vikur. Einn lagahöfundanna er hinn hálf-íslenski Amund Bjørklund. Amund, sem er lagahöfundur og upptökustjóri, er búsettur í Osló þar sem hann rekur hljóðverið Espionage Studios ásamt vini sínum og samstarfsmanni, Espen Lind. „Irreplacable er það síðasta sem við höfum sent frá okkur, og þetta er besta gengi sem við höfum náð,“ sagði Amund ánægður. „Það er draumur allra upptökustjóra og lagahöfunda að vera í fyrsta sæti á þessum bandaríska lista. Þetta er í fyrsta skipti sem við náum því, og maður veit ekki hvort það gerist aftur,“ sagði hann. Amund er fæddur og uppalinn í Noregi. Móðir hans, Nanna Þórunn Hauksdóttir, flutti til Osló um 1970. „Hún og faðir minn, Ivar Bjørklund, fluttu svo saman til Tromsø þar sem ég er fæddur,“ sagði Amund. Hann talar ekki íslensku en skilur tungumálið þó. „Ég hef aldrei búið á Íslandi, en þegar ég var lítill fórum við í löng sumarfrí til Íslands á hverju ári,“ sagði hann. Að menntaskóla loknum hélt Amund til Osló og stofnaði Espionage ásamt Espen Lind. „Við vinnum mest með popptónlistarmönnum, þótt við gerum margt annað líka,“ sagði Amund, en þeir Espen hafa meðal annars samið lög fyrir Jessicu Simpson, bresku stúlknasveitina Atomic Kitten og norsku söngkonuna Sissel Kyrkjebø. Á síðasta ári bætti Amund enn við sig verkefnum og tók sæti dómara í norsku Idol-keppninni. „Mér finnst Idol vera ótrúlega gott tækifæri fyrir unga tónlistarmenn sem vilja koma sér á framfæri,“ sagði Amund. „Þar að auki eykur keppnin áhuga á tónlist. Fjölskyldan safnast öll saman fyrir fram sjónvarpið, og hver og einn hefur skoðun á því sem hann heyrir. Það finnst mér eingöngu jákvætt,“ sagði hann. En hefur hann eitthvað heyrt af íslenskri tónlist? „Já, ég fæ alltaf haug af íslenskum geisladiskum í jólagjöf frá fjölskyldunni, svo ég geti fylgst aðeins með því sem er að gerast á Íslandi,“ sagði Amund, en móðurfjölskylda hans býr hér á landi. „Maður heyrir samt lítið af popptónlist frá Íslandi,“ bætti hann við. Amund sagðist þó ekki sýta það sérstaklega. „Það er mikið af jaðartónlist á borð við Sigur Rós, sem mér finnst mjög gott,“ sagði Amund. „En ég er meira í poppheiminum,“ sagði hann.
Mest lesið Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Lífið Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Lífið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Lífið Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia Lífið samstarf Sígild sumarterta að hætti Dana Lífið Ný stikla úr GTA VI Lífið Fleiri fréttir Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Fyrsti opinberi kossinn í þrítugsafmælinu Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Stjörnulífið: Drottningar á Bessastöðum Áttu sturlaða stund á Times Square The Wire og Sopranos-leikari látinn Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Katrín Tanja og Brooks eiga von á barni Frábær þjóðbúningamessa í Fljótshlíð Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Hátt í þrjú þúsund manns sóttu „þjóðfund“ EVE-spilara Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Krakkatían: Nintendo, tunglið og prinsessur Sjá meira