FH getur komið sér á réttan kjöl 3. júlí 2007 00:01 FH og breiðablik Mættust fyrir stuttu en liðin verða í eldlínunni í kvöld. fréttablaðið/anton
Í kvöld fara fram tveir leikir í Landsbankadeild karla. Íslandsmeistarar FH taka á móti Víkingum og Fram mætir Breiðabliki á Laugardalsvelli. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15. FH tapaði stórt fyrir Val í síðustu umferð, 4-1, og getur með sigri í kvöld endurheimt fimm stiga forskot á toppi deildarinnar, um stundarsakir að minnsta kosti. Magnús Gylfason, þjálfari Víkings, er þó hvergi banginn. „Þetta verður eðlilega erfitt en okkur líst vel á þennan leik rétt eins og alla aðra. Við verðum að taka okkur saman í andlitinu og fara að vinna leiki og mér finnst engin ástæða til annars en að byrja í þessum," sagði Magnús. Víkingar fengu aðeins eitt stig í júnímánuði, fæst allra liða í deildinni. Fram vann sinn fyrsta leik í síðasta heimaleik sínum og í kvöld mætir það Blikum sem hefur unnið tvo heimaleiki í röð, báða 3-0. „Fram kom sér í vinningsstöðu gegn KR í síðasta leik en töpuðu og eru því særðir. En við þurfum fyrst og fremst að hugsa um okkur og förum í leikinn til að vinna hann," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika. „Sjálfstraustið í liðinu er gott og sjáum við ákveðna möguleika á móti Fram sem við ætlum að nýta okkur. Ef við náum að gera það sem lagt er upp með er ég ekki hræddur." Ólafur Þórðarson, þjálfari Fram, átti von á hörkuslag. „Ég hef séð Blikana spila og hafa þeir staðið sig vel. Úrslitin eru kannski ekki eins og þeir hafa sjálfir viljað hafa þau en Breiðablik er með það gott lið að það getur unnið öll lið í deildinni á góðum degi. Við sjálfir höfum verið klaufar að klára ekki nógu marga leiki en við bætum vonandi úr því." - esá
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Hættur aðeins þrítugur Golf Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira