Yfirmaður herja NATO óánægður með Íslendinga 5. september 2007 19:07
Æðsti yfirmaður herja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu gagnrýndi í dag ákvörðun utanríkisráðherra að kalla íslenskan friðargæsluliða heim frá Írak. Hann segist hafa orðið fyrir vonbrigðum. John Craddock yfirmaður herja NATO í Evrópu ræddi í morgun við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra, en hún var þá nýbúin að staðfesta í viðtali við Stöð tvö í gærkvöldi að Íslendingar yrðu ekki lengur með fólk á vegum bandalagsins í Írak. Á blaðamannafundinum í dag leyndi Craddock ekki óánægju sinni með þessa ákvörðun. Hermenn NATO í Írak eru að þjálfa íraska herinn og aðstoða á annan hátt við uppbyggingu íraskra öryggissveita. Upplýsingafulltrúi í stöðvum NATO í Bagdad hefur undanfarin ár verið eins konar fánaberi Íslands - táknrænn stuðningur við veru erlendra herja í landinu. Þetta framlag hefur vakið kátínu í Bandaríkjunum en í máli Craddocs í dag mátti heyra að með þessari ákvörðun litu menn ekki lengur á Ísland sem hluta af fjölþjóðaliðinu í Írak. Sá upplýsingafulltrúi sem nú er í landinu kemur heim um næstu mánaðamót og enginn fer út í staðinn. Á annan tug Íslendinga starfar á öðrum vígvelli, í Afganistan. Ingibjörg segir að þar gegni öðru máli en í Írak.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira