Bjarni biðst afsökunar á marki sínu 5. júlí 2007 13:52
Bjarni Guðjónsson, leikmaður ÍA, hefur beðist afsökunar á markinu furðulega sem hann skoraði gegn Keflvíkingum í Landsbankadeildinni í gærkvöld. Keflvíkingar brugðust mjög reiðir við og sökuðu hann um ódrengilegan leik. Til átaka kom eftir leikinn í gær og þurfti Bjarni að leita skjóls inni í búningsherbergjum til að verjast árásum Keflvíkinga. Skagamenn höfðu 2-1 sigur í leiknum í gær, en síðara mark liðsins verður lengi umdeilt. Keflvíkingar spörkuðu boltanum út af hliðarlínu svo hægt væri að huga að meiðslum eins leikmanna ÍA. Í stað þess að færa Keflvíkingum boltann úr innkastinu í kjölfarið eins og siður er, var boltanum kastað til Bjarna sem skaut honum í átt að marki Keflavíkur frá miðju vallarins. Ekki vildi betur til en að boltinn sveif yfir markvörðinn og í netið. Keflvíkingar voru skiljanlega reiðir yfir þessu og réðust að Bjarna í kjölfarið. Undir lok leiksins fékk einn leikmaður úr hvoru liði að líta rauða spjaldið og þegar flautað var til leiksloka hljóp Bjarni beint til búningsherbergja með nokkra Keflvíkinga fast á hæla sér. Vísir hefur heimildir fyrir því að til nokkura átaka hafi komið í kjölfarið og að einn leikmanna Keflavíkur hafi m.a. náð að sparka í Bjarna. Stöð 2 tók viðtal við Bjarna í hádeginu þar sem hann útskýrir mál sitt. Hann segist leiður yfir því að hafa skorað markið umdeilda, en vill meina að hann hafi verið settur undir pressu þegar hann sparkaði boltanum og því hafi spyrnan misheppnast. Það hafi aldrei verið ásetningur að skora úr spyrnunni. Þótt ótrúlegt megi virðast, eru til fordæmi fyrir svona ótrúlegum uppákomum eins og sést í þessu myndbroti úr hollensku knattspyrnunni. Þar verða leikmenn Ajax uppvísir af því að skora óvart úr viðlíka spyrnu, en það sem á eftir fylgdi verður að teljast einstaklega drengileg framkoma.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Fleiri fréttir Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Sjá meira