Sport

Benedikt sterkasti maður Íslands hjá IFSA

Kraftajötuninn Benedikt Magnússon vann í dag sigur í keppninni um sterkasta mann Íslands hjá IFSA-sambandinu annað árið í röð, en keppt var í Smáralindinni. Benedikt hlaut 41 stig í efsta sæti, annar varð Georg Ögmundsson með 38 stig og nýliðinn Pétur Bruno Thorsteinsson varð þriðji með 31 stig.

Félagi Benedikts, Stefán Sölvi Pétursson, byrjaði mjög vel í kepninni í dag og sigraði í tveimur fyrstu greinunum - en hann varð því miður að hætta keppni eftir að verða fyrir meiðslum í dekkjaveltunni. Gestakeppandinn Jörgen Ljungberg frá Svíþjóð náði fjórða sætinu og Sigfús Fossdal varð fimmti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×