Innlent

Annar laus úr gæsluvarðhaldi

MYND/Vilhelm

Lögreglan á Selfossi lét í gærkvöldi lausan annan tveggja manna sem sat í gæsluvarðhaldi vegna gruns um innflutning á fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þeim báðum. Mennirnir eru grunaðir um að hafa reynt að flytja inn um 108 grömm af kókaíni frá Guynana í Suður-Ameríku. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir hinum manninum rennur út á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×