Innlent

Lúbarði og nauðgaði sambýliskonu sinni

Jón Pétursson
Jón Pétursson
Hálfsextugur karlmaður, Jón Pétursson, var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að beita þáverandi sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi í desember síðastliðnum, halda henni nauðugri í íbúð þeirra í hátt í heilan sólarhring og nauðga henni.

Jón var í október einnig dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir sambærileg brot. Hann beið þess að hæstaréttardómur gengi í málinu þegar hann framdi síðasta brotið.

Árásin átti sér stað aðfaranótt 3. desember. Jón hafði þá átt í sambandi við konuna í sex mánuði. Hann kom ölvaður heim til sín á miðnætti og reiddist konunni mjög vegna þess að hún hafði átt í samskiptum við annan karlmann.

Hann gekk rakleiðis að henni og sló hana hnefahöggi í andlitið. Eftir nokkrar barsmíðar dró hann hana á hárinu inn í svefnherbergi og skipaði henni að afklæðast. Hún átti sér engrar undankomu auðið þar sem átt hafði verið við svefnherbergishurðina.

Í framhaldinu barði hann hana ítrekað með krepptum hnefa og flötum lófa, ógnaði henni með kjöt­exi og búrhnífi og sló hana með flötum blöðum axarinnar og hnífsins. Þá nauðgaði hann henni. Misþyrmingarnar stóðu fram undir hádegi næsta dag.

Jón var ákærður fyrir að nauðga konunni í tvígang, en aðeins tókst að sanna aðra nauðgunina. Þá var hann ákærður fyrir að hafa nokkrum sinnum haldið kodda fyrir andliti hennar þar til hún var við það að missa meðvitund. Ekki tókst að sanna það.

Konan yfirgaf íbúðina ekki fyrr en að morgni 5. desember, þar sem hún var að eigin sögn í of annarlegu ástandi til þess það sem eftir lifði dagsins sem misþyrmingunum lauk.

Jón játaði að hafa barið konuna, en sagði samfarir hafa verið með hennar vilja og neitaði að hafa notað eggvopn við misþyrmingarnar. Telur dómurinn að hegðun Jóns undanfarin ár megi rekja til mikillar áfengisneyslu. Auk fangelsisvistarinnar var Jón dæmdur til að greiða konunni eina og hálfa milljón króna í bætur.


Tengdar fréttir

Óvíst hvort konan nær sér að fullu

Konan sem Jón Pétursson misþyrmdi varð fyrir miklum líkamlegum og andlegum skaða við misþyrmingum. Dagana eftir árásina var hún ráðvillt og sýndi dofa í viðbrögðum. Þegar hún leitaði á neyðarmóttöku var hún í losti og mjög vöðvaspennt, að því er fram kemur í dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×