Aftaka hjá Blikum í Árbæ 17. júlí 2007 07:00 Fyrirliðar Fylkis og Breiðabliks, Ólafur Stígsson og Arnar Grétarsson, eigast hér við í skallaeinvígi í Árbænum í gær. fréttablaðið/anton
Óhætt er að segja að fyrstu tíu mínútur leiks Fylkismanna og Breiðabliks hafi verið algerlega á skjön við það sem síðar kom. Fylkismenn byrjuðu betur og fór leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi Blika. Þá fannst fyrirliðanum Arnari Grétarssyni, nóg komið og tók leikinn í sínar hendur. Arnar virðist aldrei þurfa fleiri en eina snertingu til að koma boltanum á samherja. Nokkuð sem sjaldgæft er að sjá í efstu deild hér á landi. Drifnir áfram af fyrirliðanum tóku leikmenn Breiðabliks heldur betur við sér. Sóknarkvartett liðsins; Nenad Zivanovic á vinstri vængnum, Gunnar Örn Jónsson á þeim hægri og þeir Prince Rajcomar og Kristinn Steindórsson í framlínunni, sköpuðu hvað eftir annað usla í vörn Fylkismanna. Hægir varnarmenn Fylkis áttu ekki roð í sóknarmenn Blika. Kristinn og Prince leiddu miðverðina hvað eftir annað út úr stöðunum, á meðan Gunnar og Zivanovic léku sér að arfaslökum bakvörðunum. Guðni Rúnar Helgason hefur væntanlega þurft aspirín í hálfleik, svo illa fór Gunnar Örn með hann. Gunnar Örn Jónsson skoraði fyrsta mark leiksins á fimmtándu mínútu, úr fyrsta markskoti Blika. Vann knöttinn á miðsvæðinu, óð upp völlinn, lét vaða nokkrum metrum fyrir utan teig og hafnaði boltinn neðst í markhorninu. Stórglæsilegt mark. Blikar bættu síðan öðru marki við á tuttugustu og annarri mínútu. Kristinn Steindórsson ýtti þá boltanum yfir línuna eftir skottilraun Srdjan Gasic. Áhorfendur þurftu ekki að bíða lengi eftir þriðja markinu. Fylkismenn misstu boltann strax eftir að hafa tekið miðju, Kristinn fékk stungusendingu og afgreiddi boltann í markhornið. Þrjú núll eftir tuttugu og þrjár mínútur og leikurinn svo gott sem búinn. Síðari hálfleikur var öllu daufari en sá fyrri. Fylkismenn gerðu tvær breytingar í hléinu; inn komu þeir Albert Ingason og Peter Gravesen. Blikar spiluðu þó áfram eins og sá sem valdið hefur, héldu boltanum vandræðalaust gegn máttlitlum Fylkismönnum. Kristinn Steindórsson fékk nokkur tækifæri til að ná sínu þriðja marki, en inn vildi boltinn ekki. Gunnar Örn Hilmarsson, var besti maður vallarins í Árbænum í gærkvöldi þrátt fyrir að vera að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði í efstu deild. „Við höfum oft spilað vel í sumar en munurinn liggur í því að í kvöld nýttum við færin. Ég var ekkert sérlega stressaður fyrir leikinn og þegar fyrstu snertingarnar gengu vel, sá ég að þetta yrði minn dagur." Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkismanna, var hreinskilinn í leikslok „Góð lið nýta sér það þegar andstæðingurinn er slakur. Ég sé enga ljósa punkta í okkar liði. Boltastrákarnir voru bestu menn Fylkis í dag, og þeir voru fengnir með fimm mínútna fyrirvara." Blikar voru frábærir í gær og ekki veikur hlekkur í liðinu. Arnar Grétarsson sá til þess að boltinn gengi hratt milli manna og ungu strákarnir í framlínunni, þeir Kristinn og Gunnar, léku sér að varnarmönnum Fylkismanna. Hjá Fylki stóð ekki steinn yfir steini. Helst að Christian Christiansen í framlínunni og markvörðurinn Fjalar Þorgeirsson geti borið höfuðið. Aðrir voru hreinlega ekki með.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Írskur hnefaleikakappi í „alvarlegu“ ástandi eftir að hafa rotast í bardaga Sport Klifraði upp í stúku og réðst á stuðningsmann eftir að hafa verið skipt af velli Fótbolti Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 Freyr tapaði gegn sínu gamla félagi þar sem Kristall var á skotskónum Fótbolti Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Íslenski boltinn Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Golf Sjáðu sjálfsmark og vítaspyrnur í Þjóðhátíðarleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Sjá meira