Upson vill ekki vera hjá Birmingham 1. janúar 2007 18:30 Matthew Upson hefur hér betur gegn Michael Owen hjá Newcastle. MYND/Getty
Umboðsmaður varnarmannsins Matthew Upson hefur lýst því yfir að leikmaðurinn sjái framtíð sína ekki í herbúðum Birmingham, en hann er með samning við liðið sem rennur út eftir 18 mánuði. Ummæli umboðsmannsins verða líklega til þess að Birmingham haldi uppboð á Upson á næstu dögum, þar sem hæstbjóðandi hreppi hnossið. Þar sem Upson hefur ítrekað lýst yfir vilja sínum að yfirgefa Birmingham er talið að forráðamenn liðsins sjái hagsmunum sínum best varið með því að selja leikmanninn strax, svo að sem mestir peningar fáist. Talið er að Upson, fyrrum leikmaður Arsenal, sé metinn á um sex milljónir punda. Steve Bruce, stjóri Birmingham, vill hins vegar með engu móti missa Upson en hingað til hafa ný samningstilboð félagsins ekki verið freistandi fyrir varnarmanninn. Birmingham er í efsta sæti ensku 1. deildarinnar sem stendur og stefnir hraðbyri á úrvalsdeildina á næstu leiktíð. Bruce segir að úrvalsdeildarsæti geti orðið til þess að Upson snúist hugur. "Vonandi verðum við í úrvalsdeildinni í sumar og þá fáum við meiri pening til að setja í samning Upson. Þá getum við vonandi gert honum tilboð sem hann getur ekki hafnað," sagði Bruce. Liverpool, Bolton, Portsmouth og jafnvel Chelsea eru sögð fylgjast vel með gangi mála hjá Upson.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Sjá meira