Sjálfstæðisflokkur og VG samstiga gegn ESB 7. mars 2007 06:45
Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Sjálfstæðisflokkurinn hafa lagt fram sameiginlega bókun úr starfi Evrópunefndar. Þetta staðfestu nefndarmenn við Fréttablaðið í gær. Skýr afstaða gegn Evrópusambandsaðild kemur fram í bókuninni. Í drögum af niðurstöðum nefndarstarfsins, sem stýrt er af Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra, kemur fram að engar líkur séu á því "að samist geti um milli Íslands og ESB, að 200 mílna efnhagslögsagan umhverfis Ísland verði í heild sinni viðurkennd sem sérstakt fiskveiðistjórnunarkerfi undir stjórn Íslendinga [...] Það er niðurstaða nefndarinnar að Íslendingar geti ekki framselt yfirráðin yfir þeim miklu auðæfum sem þar er að finna til Evrópusambandsins, án þess að hafa nokkra vissu fyrir hvaða reglum verði fylgt í sjávarútvegsmálum á komandi áratugum." Í niðurstöðunum er einnig frá því greint að réttur ríkja til þess að gera sjálfstæða viðskiptasamninga við önnur ríki myndi niður falla við aðild að Evrópusambandinu. "Nefndin telur því afar óhyggilegt fyrir Íslendinga að glata réttinum til að gera fríverslunarsamninga við önnur ríki." Framsóknarflokkurinn hyggst leggja fram sérstaka bókun líkt og Samfylkingin. Brynjar Sindri Sigurðsson, fulltrúi Frjálslynda flokksins í nefndinni, og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, útilokuðu ekki í gær að flokkurinn tæki undir með Vinstri grænum og Sjálfstæðisflokki en sögðu líklegra að flokkurinn léti nægja að leggja fram sérstaka bókun. Nefndarmenn funda í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu í dag. Björn Bjarnason var ekki tilbúinn til þess að greina frá vinnu nefndarinnar þar sem nefndarvinnu væri ekki lokið. Í lokaorðum í drögum að niðurstöðum nefndarinnar kemur fram að þótt aðild að ESB fylgi ýmsir kostir sé "hitt fullljóst að þeir hagsmunir og réttindi sem glatast við aðild vegi miklu þyngra en kostirnir". - mh
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira