Víðir svarar bréfi Blika Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2007 12:30 Víðir Sigurðsson, höfundur Íslenskrar knattspyrnu 2007. Mynd/E. Stefán
Víðir Sigurðsson, höfundur bókarinnar Íslensk knattspyrna 2007, hefur svarað bréfi knattspyrnudeildar Breiðabliks frá því í gær. Blikar gagnrýndu Víði fyrir að skrá að Magnús Páll Gunnarsson hafi skorað sjö mörk í sumar, en ekki átta eins og KSÍ gerði í sínum gagnagrunni. Magnús Páll fékk bronsskóinn í haust en þrír leikmenn skoruðu átta mörk í sumar samkvæmt gögnum KSÍ. Fréttatilkynning Víðis er eftirfarandi: „Vegna bréfs sem knattspyrnudeild Breiðabliks sendi fjölmiðlum í gær, þar sem vinnubrögð mín vegna lýsingar á marki í leik Breiðabliks og FH í 16. umferð Landsbankadeildar karla voru fordæmd, vil ég koma á framfæri eftirfarandi útskýringu sem er að finna í bókinni Íslensk knattspyrna 2007: "Um árabil hefur Óskar Ó. Jónsson íþróttafréttamaður komið undirrituðum til aðstoðar með ákveðna þætti í bókinni, eins og lesendur eflaust þekkja. Þar er innifalin nákvæm skoðun hans á hverju einasta marki sem skorað er í efstu deild karla en Óskar fer yfir öll mörkin af myndböndum til að gulltryggja að rétt sé frá þeim sagt. Í sumar var deilt um hvort skrá ætti mark sem Breiðablik skoraði gegn FH í 16. umferð sem sjálfsmark eða á leikmann Breiðabliks, Magnús Pál Gunnarsson. Dómari leiksins skráði það á Magnús sem þar með taldist vera með 8 mörk og rétthafi bronsskóarins. En nákvæm skoðun Óskars leiddi í ljós að útilokað er annað en að skrá markið sem sjálfsmark. Breyta þyrfti heildarmatinu á hvenær mark telst sjálfsmark og hvenær ekki til þess að hægt væri að skrá umrætt mark á Magnús Pál. Hann er því skráður með 7 mörk í bókinni." Við þetta er því að bæta að umrætt mark var grandskoðað strax daginn eftir leikinn, sem fram fór 16. september, og þá þegar varð ljóst að ekki væri grundvöllur fyrir öðru en að skrá það sem sjálfsmark. Það fór ekkert á milli mála að varnarmaður FH sendi boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf frá hægri. Ítrekaðar skoðanir eftir það hafa engu breytt þar um. Í ellefu ár hafa ofangreindar aðferðir verið notaðar til að lýsa öllum mörkum í deildinni af mestu mögulegu nákvæmni í bókunum Íslensk knattspyrna. Ef það stangast í einhverjum tilvikum á við hvernig þau eru skráð á leikskýrslur, verður svo að vera. Það er útilokað að lýsa atvikum öðruvísi en þau ber fyrir sjónir og ítrasta möguleg skoðun leiðir í ljós. Það væru ekki fagleg vinnubrögð. Víðir Sigurðsson íþróttafréttamaður og höfundur bókarinnar Íslensk knattspyrna 2007."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira