Innlent

Öryrkjar telja ekkert að óttast

Öryrkjabandalagið óttast ekki skerðingu lífeyrissjóða.
Öryrkjabandalagið óttast ekki skerðingu lífeyrissjóða.

Greiðslustofa Lífeyrissjóðanna telur að tólf hundruð lífeyrisþegar séu það vel staddir að réttlætanlegt sé að fella alveg niður greiðslur til þeirra og lækka bætur ellefu hundruð annarra.

Lífeyrissjóðir frestuðu lækkun bótanna í október þar til 1. febrúar. Lífeyrisbætur ríflega 2.000 öryrkja ættu því að óbreyttu að falla niður eða lækka um mánaðamótin en í desember var því beint til fulltrúa fjórtán lífeyrissjóða að fresta skerðingum fram til sumarsins.

Matthildur Hermannsdóttir, framkvæmdastjóri Greiðslustofu lífeyrissjóðanna, segir nú að ekki séu líkur á frekari frestun en forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins telja að félagsmenn þess þurfi ekkert að óttast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×