Iðnaðarráðherra tekur vel í beiðni um hlutafélagavæðingu 3. september 2007 18:42
Meirihluti stjórnar Orkuveitunnar ákvað í morgun að óska eftir því að fyrirtækinu verði breytt í hlutafélag. Til þess að svo geti orðið þarf iðnaðarráðherra að leggja fram frumvarp um málið. Hann segist taka slíkri beiðni vel að því gefnu að tryggt verði að Orkuveitan verði áfram í félagslegri eigu. Stjórn Orkuveitunnar hittist á fundi í morgun og samþykkti meirihluti hennar að óska eftir því við eigendur fyrirtækisins að þeir breyti rekstarformi Orkuveitunnar í hlutafélag. En þetta gengur eftir verður Orkuveitan sjötta orkufyrirtækið sem breytt er í hlutafélag á síðustu árum. Borgarstjóri segir hlutafélagavæðinguna mikla þýðingu fyrir Reykjavíkurborg sem er stærsti eigandi Orkuveitunnar. Borgarsjóður losni undan ábyrgð lána, þetta lækki skatta sem Orkuveitan þarf að greiða auk þess sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemdir þar sem fyrirtækið er í samkeppni við hlutafélög á orkumarkaði. Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur sem sæti eiga í stjórn Orkuveitunnar, þau Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir, gagnrýna hvernig staðið var að málum en þau greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þau segja lítinn undirbúning hafa verið að breytingunni auk þess sem skort hafi gögn til að hægt væri að taka ákvörðun í málinu. Svandís segir ákvörðunina skref í átt að einkavæðingu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir alveg ljóst að Orkuveitan verði ekki einkavædd. Til að hægt sé að breyta Orkuveitunni í hlutafélag þarf Alþingi að gera lagabreytingu. Eigendur Orkuveitunnar þurfa því að leita til Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra og biðja hann að leggja fram frumvarp þess efnis. Össur segir að hann sé þeirrar skoðunar að almannaveiturnar í landinu þurfi að vera í félagslegri meirihlutaeign. Hann vilji ekki stuðla að því að þau gæði sem felast í góðri og ódýri heimilisorku séu tekin af fólki. Verði tryggt að það sé ekki gert sér Össur því hins vegar ekkert til fyrirstöðu rekstrarformi Orkuveitunnar sé breytt.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Sjá meira