Tókum þetta á endasprettinum 30. september 2007 00:01 Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals með Íslands-bikarinn. Fréttablaðiðð/Vilhelm
Sigurbjörn Hreiðarsson, Guðmundur Benediktsson og Helgi Sigurðsson voru allir í lykilhlutverki í fagnaðarlátunum hjá Valsmönnum en það var mikið fjör inni í búningsklefanum eftir leik. Sigurbjörn er búinn að sýna Val mikla tryggð í gegnum árin. „Ég er heldur betur búinn að bíða eftir þessari stund lengi. Valur og FH eru með mjög jöfn lið og þetta gat lent hvorum megin sem var. Vendi-punkturinn var úrslitaleikurinn á móti FH um síðustu helgi því manni fannst um tíma eins og FH-ingar væru í bílstjórasætinu en við komum á endasprettinum. Ég hefði aldrei skipt á þessari stundu fyrir einhvern pening einhvers staðar annars staðar. Valur er einfaldlega stærsti klúbburinn og nú er runninn upp nýr tími. Auðvitað fara öll stórveldi í öldudali við og við en það er líka styrkur stórveldis að rísa upp úr því og það gerðum við,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals eftir leikinn. Guðmundur Benediktsson átti frábært sumar og var líka kátur í leikslok. „Ég sé ekki eftir því að hafa tekið eitt tímabil í viðbót því þetta snýst um svona stundir. Ég er ótrúlega stoltur. Það var gríðarlega erfitt að fara inn í svona leik, það eru ekki margir í þessu liði sem hafa orðið Íslandsmeistarar og það er erfitt að stíga yfir þann þröskuld. Maður fann að það var stress í liðinu í dag og þegar við vorum bara einu marki yfir þá gat þetta verið fljótt að breytast. Við héldum þetta út og sýndum mikinn karakter,“ sagði Guðmundur Benediktsson og bætti við. „Ég er sáttur með tímabilið, við erum með ótrúlega sterkt lið og það er yndislegt að fá að taka þátt í þessu. Ég er ekki kominn svo langt í lífinu að taka einhverja ákvörðun um framhaldið. Þetta er fimmti Íslandsmeistaratitillinn minn og þeir verða ekkert verri með árunum,“ sagði Guðmundur. Helgi Sigurðsson missti af gullskónum en var ekkert að svekkja sig á því. „Ég kom í Val til þess að verða Íslandsmeistari en ekki til að verða markakóngur svo að það skiptir engu þótt ég hafi ekki náð í gullskóinn,“ sagði hás Helgi Sigurðsson í búningsklefa Vals-liðsins eftir leikinn. „Við erum mjög sáttir við þetta og þetta er búið að vera frábært ár í sögu Vals og fyrir okkur strákana. Væntingarnar okkar voru alltaf að vinna þetta mót og við náðum þeim markmiðum okkar, við ætlum að njóta þessa í kvöld og ég á von á stórveislu,“ sagði Helgi Sigurðsson eftir leik.- óój
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Fleiri fréttir Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Sjá meira