Sjónvarpsstjarna verðlaunar sjálfa sig með glæsikerru 3. september 2007 10:15 Glæsilegt eintak Bílarnir í 3-línu BMW eru af mörgum stærðum og gerðum og kosta á bilinu 3-6 milljónir. Þeir þykja einstaklega mjúkir í akstri og eyða litlu miðað við þann kraft sem þeir skila.
Sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir ekur nú um götur borgarinnar á glænýjum BMW sem hún festi kaup á fyrir skemmstu. Glæsikerran er af svokallaðri 3-línu BMW, en bílarnir í þeirri línu þykja einkar nettir og sparsamir miðað við kraftinn í þeim. Ragnhildur Steinunn staðfesti við Fréttablaðið að hún væri kominn á nýjan bíl en vildi annars ekkert hafa eftir sér um málið. BMW-þristarnir eru af mörgum stærðum og gerðum og kosta frá rúmum þremur milljónum upp í sex milljónir. Í umfjöllun um 3-línuna á heimasíðu B&L, söluaðila BMW-bifreiða á Íslandi, segir að bílarnir skili ökumönnum ósvikna akstursánægju. Þristarnir séu hátíð skynfæranna og þá eru mögulegir kaupendur varaðir við því að þeir sem taki einu sinni um vel lagað aðgerðastýri 3-línunnar séu líklegir til að sleppa aldrei takinu af því aftur. Ragnhildur Steinunn hefur unnið eins og skepna síðustu árin samfara því að stunda fullt háskólanám. Þessi lýsing á nokkuð vel við Ragnhildi því hún hefur mikla og góða reynslu af BMW í gegnum fjölskyldu sína í gegnum árin. Kærasti hennar, knattspyrnumaðurinn og sálfræðineminn Haukur Ingi Guðnason, hefur keyrt BMW í nokkur ár, og hefur líklega náð að koma dellunni yfir á konu sína. Líklegt má telja að með bílakaupunum hafi Ragnhildur verið að verðlauna sjálfa sig fyrir þrotlausa vinnu undanfarin ár. Hún útskrifaðist nýlega með glans úr Háskóla Íslands þar sem hún lærði sjúkraþjálfun en samhliða náminu hefur Ragnhildur verið í fullu starfi hjá Kastljósi RÚV auk þess sem hún hefur hún reynt fyrir sér á leiksviðinu og á hvíta tjaldinu með góðum árangri. Þá hefur hún verið kynnir á hinum ýmsu viðburðum RÚV undanfarin misseri, svo sem undankeppni Eurovision og Eddu-verðlaununum.
Mest lesið Dolly Parton látin Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Lífið Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Menning „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Bíó og sjónvarp Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Tónlist Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið Fleiri fréttir Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Sjá meira