Fundu tjöld Þjóðverjanna sem leitað er að á Svínafellsjökli 23. ágúst 2007 11:31
Þyrla frá Landheglisgæslunni fann nú á tólfta tímanum tjöld ofarlega í Svínafellsjökli og björgunarsveitarmenn, sem eru komnir á vettvang, staðfesta að þau tilheyri þýsku ferðamönnunum, sem leitað er að. Ekkert hefur hinsvegar sést til þeirra. Þessi árangur náðist fljótlega eftir að þoku létti af svæðinu en þyrla var að flytja björgunarmenn á Hvannadalshnjúk. Jafnvel stóð til að flytja leitarmenn á fleiri tinda í dag en öllum áætlunum hefur verið breytt í ljósi þessa. Að sögn Víðis Reynissonar, fulltrúa Ríkislögreglustjóra í leitinni, verður nú öll áhersla lögð á að leita út frá tjöldunum, bæði úr lofti og á landi. Svæðið er hins vegar mjög erfitt yfirferðar þannig að ekki verða sendir nema reyndustu björgunarmenn inn á svæðið. Þá er í ráði að björgunarsveitarmenn gangi árbakka jökulánna neðan Svínafellsjökuls. Síðustu samskipti, sem vitað er um við mennina, eru GSM-smáskilaboð, sem annar tók við í farsíma sínum í gegnum sendinn í Skaftafelli. Reyndir löggæslu-og björgunarmenn segja að það sé í sjálfu sér ótrúlega fátítt að erlendir ferðamenn týnist hér miðað við reynsluleysi þeirra af hættulegum aðstæðum og oft lélegan búnað. Síðast hvarf erlendur ferðamaður við utanverðan Eyjafjörð fyrir fimm árum, þar sem hann var einn á ferð.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Sjá meira