Dramatískur Valssigur í Vesturbæ 11. júlí 2007 06:30 Ágúst Þór Gylfason hafði gætur á Helga Sigurðssyni en í vítakeppninni skoraði Helgi á meðan að Ágúst skaut yfir í sinni spyrnu. Fréttablaðið/Daníel
Valsmenn tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum VISA-bikars karla eftir dramatískan sigur á KR-ingum í Vesturbænum. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit en þar fóru heimamenn illa af ráði sínu. KR-ingar brenndu úr þremur vítaspyrnum á meðan Valsmenn skoruðu úr öllum sínum. Segja má að réttlætinu hafi verið fullnægt með sigri Vals í vítaspyrnukeppninni í gær. Liðið var í bílstjórasætinu allt fram á síðustu mínútu venjulegs leiktíma í gær þegar varnarjaxlinn Tryggvi Bjarnason skoraði með skalla eftir aukaspyrnu markvarðarins Stefáns Loga Magnússonar frá miðju vallarins. Guðmundur Benediktsson hafði áður komið þeim yfir á 73. mínútu úr aukaspyrnu sem lak í gegn vörn KR en fram að þeim tíma hafði Stefán Logi komið í veg fyrir að Valsmenn næðu að skora. KR-ingar vörðust auk þess fimlega lengst af, með „nýju miðverðina" Tryggva Bjarnason og Ágúst Gylfason sem bestu menn. Sóknarleikur af hálfu KR var hins vegar varla til staðar. Teitur Þórðarson beitti sömu taktík og í síðustu leikjum KR og notaðist við 4-5-1 leikkerfið þar sem Rúnar Kristinsson var í frjálsri stöðu fremst á miðjunni. Rúnar er hins vegar ekki að finna sig í röndóttu treyjunni og um leið og jafn mikilvægur leikmaður er ekki inn í leiknum missir sóknarleikur KR algjörlega marks. Valsmenn spiluðu eins og þeir eru vanir lengst af í gær, leikmenn eru mjög hreyfanlegir og ná oft á tíðum að spila boltanum vel á milli sín. Baldur Aðalsteinsson og Birkir Már Sævarsson áttu mjög góðan leik á hægri vængnum í liði Vals og Guðmundur sýndi fína takta inn á milli. Liðið spilaði vel úti á velli en einhverra hluta vegna náði liðið ekki að binda endahnútinn á sóknir sínar. Munaði þar mestu um framlag Helga, sem var mun minna en verið hefur í sumar. Teitur verður seint sakaður um að reyna ekki að finna réttu blönduna í liði KR. Hann kvikar hvergi við að gefa ungu mönnunum tækifæri en í gær réðu þeir einfaldlega ekki við hlutverkið. Leikur KR gjörbreyttist til hins betra eftir að Teitur setti Jóhann Þórhallsson, Björgólfur Takefusa og Óskar Örn Hauksson inn á. Mark Tryggva færði liðinu aukin meðbyr í framlenginguna á meðan leikmönnum Vals var augljóslega brugðið og voru KR-ingar síst lakari aðilinn í framlengingunni. Liðið náði hins vegar ekki að nýta sér meðbyrinn til fullnustu. Litlu mátti muna að Valsmenn yrðu fórnarlömb eigin einbeitingarleysis í gær. Liðið hafði tögl og haldir á leiknum nánast frá upphafi. Liðið sýndi hins vegar mikinn karakter í vítaspyrnukeppninni með því að skora úr öllum sínum spyrnum fyrir framan Frostaskjólið. KR-ingar guggnuðu hins vegar á pressunni. Vítakeppnin 1-0 Helgi Sigurðssonskoraði 1-0 Björgólfur Takefusavarið 2-0 Sigurbjörn Hreiðarssonskoraði 2-0 Ágúst Gylfasonskaut yfir 3-0 Daníel Hjaltasonskoraði 3-0 Jóhann Þórhallssonvarið
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Handbolti Banna trans konum að keppa á Ólympíuleikunum Sport Í beinni: Silkeborg - KA | Hvað gera Norðanmenn í Danaveldi? Fótbolti Ballið ekki búið hjá Breiðabliki Fótbolti Þorsteinn líklega áfram með landsliðið Fótbolti Hetja Englands á EM: „Fyrir fjórum árum var ég krakki að kasta boltum til þeirra“ Fótbolti „Meiri áhrif frá Arnari Gunnlaugssyni heldur en Svíþjóð“ Fótbolti Sjáðu rauða spjaldið og vítin fjögur úr slátrun Lech á Blikum Fótbolti Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Enski boltinn Fleiri fréttir Cosic kominn í KR-búninginn Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ KR í markmannsleit eftir meiðsli „Við erum ekki á góðum stað“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Birnir Snær genginn til liðs við KA „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jón Páll aðstoðar Einar Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Elvis snúinn aftur KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Sjá meira