Alþjóðleg teymisvinna 11. júlí 2007 04:45 Sif Sigfúsdóttir,
Á alþjóðlegri ráðstefnu í Amsterdam í byrjun júlí var fjallað um fjölbreytileika í samfélögum, þjóðum og fyrirtækjum. Þar hitti ég fyrir konu að nafni Ruth Bar-Sinai frá Ísrael. Hún hefur sérhæft sig í alþjóðlegri teymisvinnu þar sem fólki af ólíkum uppruna, kyni og þjóðerni er kennt að vinna saman í leikjum sem eru að mestu án orða en reyna meira á líkamstjáningu. Leikirnir henta vel í aðstæðum þar sem menning, félagslegar aðstæður og pólitískar aðstæður eru ólíkar. Ekki er krafist mikillar líkamlegrar getu en áhersla er á líkamstjáningu. Ruth bauð þeim sem vildu leika sér og verða börn í annað sinn, upp á sextíu mínútna tíma í leikjafræðunum. Ég þáði boðið. Byrjað var á því að fara úr skónum inn í teppalagðan sal. Þá var hverjum afhent blaðra til að leika sér með. Sumir slógu blöðrunum stríðnislega í næsta mann og báðu þannig um viðbrögð. Aðrir voru einbeittir með eigin blöðru í loftinu og enn aðrir reyndu hjólhestaspyrnur með sínar blöðrur. Þá var hópnum skipt í pör sem áttu að halda tveimur blöðrum á lofti saman en þó alltaf að skiptast á blöðrum. Hér voru mismikil læti í fólki og mikið hlegið þegar sumir fórnuðu sér í gólfið til að ná blöðrunni. Þegar kom að teymisvinnu var þátttakendum komið í sex manna hópa sem áttu að halda átta blöðrum á lofti í einu með samvinnu. Liðið mátti tala saman og gera áætlun í um 30 sekúndur. Engin blaðra mátti detta í gólfið. Ósjálfrátt notuðu allir ensku og ákvað hópurinn sem ég var þátttakandi í að gera net úr höndum og halda þannig átta blöðrum á lofti í einu án þess að missa eina. Kapp var komið í liðið og þátttakendur staðráðnir í að vinna þessa áskorun. Að sögn Ruthar er tilgangur með teymisvinnunni að fá fólk til að einbeita sér að samvinnu og gleyma því að í hópnum sé fólk af ólíku þjóðerni, stöðu eða kyni. Þannig verður til sterkur vilji hjá liðinu að ná markmiðinu og allt annað gleymist sem ekki viðkemur árangri liðsins. Með teymisvinnunni geta þeir einnig sem eru vanir að stjórna ákveðið að vera til hliðar í slíkum leik og leyft öðrum sem ekki hafa fengið slík tækifæri að sýna leiðtogahæfileika sína. Margir upplifa frelsi í leikjunum og sjá jafnvel nýja hlið á sjálfum sér eftir leikina. Ruth segir að nýja hlutverkið lifi lengi í hugum fólks. Hún hefur unnið með ólíka hópa í skólum í Ísrael þar sem daglega eru t.d. gyðingar og arabar saman í skóla. Vegna trúarbragða mega sumir ekki snerta aðra manneskju í leikjum og þá þarf Ruth að aðlaga leikinn að þeirra hætti s.s. með því að nota kústa sem haldið er á saman og fleira í þeim dúr til að ekki verði snerting. Leikirnir gera það að verkum að fólk fer úr sínum daglegu hlutverkum og inn í heim leikjanna sem mörgum er horfinn síðan úr barnæsku. Þátttakendur geta leyft sér að láta eins og börn og spenna úr daglegu lífi er losuð með hlátrasköllum og líkamstjáningu. Teymisvinnan varð til þess að þeir þátttakendur á ráðstefnunni sem höfðu tekið þátt í leikjunum heilsuðust kumpánlega í kaffihléum eftir þetta. Sif Sigfúsdóttir, MA í mann-auðsstjórnun.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira