Innlent

Vilja óbreyttar uppbætur

Mikill meirihluti félagsmanna VR vill fá orlofs- og desemberuppbætur greiddar með hefðbundnum hætti í stað þess að fella þessar uppbætur inn í laun sem myndu þá dreifast á tólf mánuði ársins. Þetta kemur fram í könnun sem um eitt þúsund félagsmenn VR svöruðu.

85 prósent svarenda fá desemberuppbót greidda eins og kjarasamingur segir til um og 80 prósent fá orlofsuppbót á hefðbundinn hátt.

Niðurstöður könnunarinnar sýna að 88 prósent þeirra sem svara eru mótfallin því að semja um það í næstu kjarasamningum að fella orlofs- og desemberuppbót inn í laun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×