Mourinho ögrar Wenger 8. desember 2006 14:45 Jose Mourinho segir vandræði Arsenal stafa af því að liðið sé ekki nógu duglegt við að laga sig að leikaðferð andstæðinganna NordicPhotos/GettyImages
Jose Mourinho hefur nú sent kollega sínum Arsene Wenger góða sneið fyrir stórleik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn, en Mourinho segir vandræði Arsenal í deildinni í vetur að hluta til stafa af því að Wenger sé ekki nógu góður í að laga lið sitt eftir aðstæðum. Mourinho var spurður að því hvort hann öfundaði Arsenal af þeirri fallegu og skemmtilegu spilamennsku sem liðið hefur sýnt á köflum í deildinni í vetur, en Mourinho var fljótur að benda á að það hefði ekki úrslitaþýðingu að spila fallegan bolta. "Við erum lið sem lagar sig að breyttum aðstæðum og það er ástæðan fyrir því að undir minni stjórn höfum við fullt hús stiga á útivelli gegn Bolton og ekki fengið á okkur mark - á meðan Arsenal getur ekki unnið þar. Besti fótboltinn er fótbolti sem lagaður er að aðstæðum hverju sinni. Chelsea í Meistaradeildinni er ekki sama lið og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Það er ekki nóg að vinna einn leik 6-0 og tapa svo leik sem þú átt að vinna viku síðar. Ég hef spilað leiki með þrjá miðverði og ég hef líka spilað leiki með fimm manna sóknarlínu. Chelsea er sóknarlið sem lagar sig að aðstæðum og maður spilar ekki sömu taktík gegn Bolton og maður spilar gegn Watford. Það er rosalega fínt að spila fallega knattspyrnu þegar maður verður enskur meistari - en það er ekki jafn fallegt ef maður endar í fjórða sæti og tryggir sér ekki sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr en í síðasta leik riðlakeppninnar," sagði Mourinho og er þar með búinn að gefa tóninn fyrir leikinn á sunnudaginn.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Fleiri fréttir Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Sjá meira