Uppgjör við síðustu plötu 15. júlí 2006 12:30 Johnny Cash Íslands? Björgvin Halldórsson syngur nýja lag Baggalúts og þykir minna á sjálfan Johnny Cash.
Hljómsveitin Baggalútur hefur sent frá sér nýtt lag, Allt fyrir mig, sem Björgvin Halldórsson syngur, en það verður á nýju plötunni þeirra, Aparnir í Eden. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Guðmund Pálsson um lag sem er hálfgerður ómagi. Baggalútur sló í gegn á síðasta ári með plötunni Pabbi þarf að vinna en þar léku þeir köntrítónlist eins og sannir Nashville-búar. Eftir þessar vinsældir lögðust félagarnir í dvala og íhuguðu hvernig þeir gætu mögulega bryddað upp á einhverjum nýjungum enda kom það ekki til greina að hjakka í sama farinu. Hawaii-hljóðfærið ukulele hafði heillað þá um nokkurt skeið og því var ákveðið að blanda því saman við köntríið sem þeir höfðu náð góðum árangri með. Nýja lagið, Allt fyrir mig, stingur reyndar í stúf við það sem koma skal á nýju plötunni en þegar Fréttablaðið náði tali af Guðmundi Pálssyni, liðsmanni Baggalúts, var hann nýkominn frá Króatíu þar sem hann hafði verið að sleikja sólina ásamt fjölskyldu í viku. "Lagið hefði í raun átt að vera á síðustu plötu, það er hálfgert uppgjör við hana," útskýrir hann. "Þegar ljóst var að Björgvin hefði ákveðið að taka sönginn að sér kom hins vegar aldrei neitt annað til greina en að hafa lagið svona," bætir hann við. Hljómsveitin nýtur liðsinnis tveggja blástursleikara frá Nashville en Allt fyrir mig var tekið upp á fjórum stöðum. "Lagið sjálft var tekið upp í Geimsteini, Björgvin söng í Sýrlandi, blásturshljóðfærin voru hljóðrituð í Omni Sound Studios í Nashville en önnur umhverfishljóð voru síðan tekin upp í Félagsheimilinu á Flúðum," segir Guðmundur sem lýsir laginu sem hálendisköntríslagara. "Það er einhvern veginn hægt að heyra í vindinum án þess að hann sé þar, lagið er með eyðimerkurbrag og hálendið er jú okkar eyðimörk." útskýrir Guðmundur sem sparaði ekki stóru orðin um hæfileika Björgvins Halldórssonar. "Björgvin hafði ákaflega lítið fyrir þessu," segir Guðmundur en stórsöngvarinn minnir óneitanlega á Johnny Cash í laginu. "Björgvin er enda á svipuðum stalli hjá okkur og Cash í Bandaríkjunum."
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira