Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Blackburn hefur yfir 1-0 gegn Liverpool á Anfield þar sem Benni McCarthy skoraði fyrir gestina.
Arsenal hefur yfir 2-0 gegn Watford þar sem Henry skoraði síðara mark Arsenal, en fyrra markið var sjálfsmark. Middlesbrough hefur yfir 1-0 gegn Everton með marki Yakubu úr víti og Kanu skoraði mark Portsmouth sem hefur yfir 1-0 gegn West Ham.
Markalaust er í leikjum Manchester City og Sheffield United og svo í leik Aston Villa og Tottenham, þar sem gestirnir hafa verið miklu betri í fyrri hálfleik en virðast ekki með nokkru móti geta skorað mark frekar en fyrri daginn.