Tíu ára áætlun VÍS lauk á tæpum tveimur árum 2. júní 2006 05:15 Í forstjóratíð Finns Ingólfssonar hefur VÍS-samstæðan sexfaldast að stærð Finnur tekur við starfi starfandi stjórnarformanns Vátryggingafélags Íslands eftir að Exista eignaðist VÍS eignarhaldsfélag að öllu leyti.
Þegar Finnur Ingólfsson kom til starfa hjá VÍS seint árið 2002 var félagið metið á tólf milljarða króna. Virði VÍS eignarhaldsfélags í dag er tæpir 66 milljarðar króna eftir að greint var frá því að Exista hefði eignast félagið að fullu. Við settum okkur tíu ára markmið þegar við skipulögðum fyrirtækið árið 2003. Á um það bil tveimur árum höfðum við náð flestum markmiðunum. Vöxturinn og árangurinn fór langt fram úr því sem björtustu vonir stóðu til, segir Finnur. Hann lætur nú af störfum sem forstjóri VÍS eignarhaldsfélags en verður starfandi stjórnarformaður Vátryggingafélags Íslands. Hann er bæði sáttur við eigendaskiptin og eigin vistaskipti en Ásgeir Baldursson tekur við starfi framkvæmdastjóra VÍS. Þegar flestar stærðir eru bornar saman má segja að félagið hafi sexfaldast. Heildareignir félagsins hafa vaxið úr tuttugu milljörðum króna í 110 milljarða og eigið fé farið úr 4,9 milljörðum í þrjátíu. Markaðshlutdeild VÍS hefur einnig vaxið jafnt og þétt á þessum tæpu fjórum árum, farið úr 32 prósentum í tæp 40 prósent. Finnur lýsir betur þeim breytingum sem urðu eftir að hann koma til starfa. Við skipulögðum fyrirtækið út frá því að það væri tryggingafélag en víkkuðum út hlutverk þess þannig að það væri jafnframt öryggis- og fjármálaþjónustufyrirtæki. Frá þeim tíma hefur VÍS bætt við sig hlutabréfum í Öryggismiðstöð Íslands, keypt Lýsingu og tryggingafélögin Vörð og Íslandstryggingu. Jafnframt er VÍS brautryðjandi í útrás íslenskra tryggingafélaga með fjárfestingum í Englandi og Noregi. Telur Finnur að vöxtur tryggingafélaganna liggi á erlendum miðum á næstu árum. Samkeppnin hér heima er mikil og tryggingamarkaðurinn vex lítið. Þú verður í vextinum að leita út fyrir landsteinanna. Við höfum skilgreint okkar markað sem Norðurlöndin og Bretland. En til þess að ná árangri þurfa ýmsir þættir að vera til staðar að mati Finns. Fyrirtækið þarf að vera fjárhagslega öflugt til þess að geta tekið áhættu sem snýr að kraftmiklum vexti. Finnur nefnir einnig að fyrirtæki verði að eiga trausta og ánægða viðskiptavini og síðast en ekki síst ánægt og gott starfsfólk. Allt þetta hefur verið til staðar hjá okkur. Finnur er spurður um kaup VÍS á hlutabréfum ríkisins í Búnaðarbankanum í ársbyrjun 2003 en þessi hlutur hefur margfaldast að virði. Það hefur verið afskaplega vel spilað úr þeirri fjárfestingu og þar skipti höfuðmáli sameining Búnaðarbankans á sínum tíma við Kaupþing. Hann bætir við að töluverð áhætta hafi legið í þessum kaupum fyrir þá aðila sem komu að kaupunum.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira