Mjöll Frigg gæti átt rétt á bótum 19. janúar 2005 00:01
Kópavogsbær gæti verið skaðabótaskyldur hafi Mjöll Frigg fengið vilyrði bæjaryfirvalda fyrir verksmiðju að Vesturvör í Kópavogi. Það er mat Viðars Lúðvíkssonar hæstaréttarlögmanns. Viðar segir þó margt koma til skoðunar bótaábyrgðar, til dæmis hvaða upplýsingar fyrirtækið hafi gefið upp og hvaða forsendur bæjaryfirvöld settu hafi þeir gefið vilyrðið. Flosi Eiríksson, samfylkingarmaður í bæjarráði Kópavogs, segir eiganda Mjallar Friggjar, Hinriki Morthens, hafa sagt og sýnt fram á með tölvupósti að hann hafi haft samband við yfirvöld í bænum fyrir flutninginn á fundi ráðsins í síðustu viku. Flosi segir brýnt að senda fyrirtækinu skýr skilaboð um að bæjaryfirvöld vilji ekki hafa starfsemi þess á hafnarsvæðinu. Davíð Egilsson, forstjóri Umhverfisstofnunnar sem hóf rannsókn á málinu að beiðni umhverfisráðuneytisins, segir skipulagsyfirvöld í Kópavogi þurfa að gera upp við sig hvort starfsemi Mjallar Friggjar eigi að vera við Vesturvör í Kópavogi eða ekki. Það sé niðurstaða stofnunarinnar eftir fund sem hún átti með forsvarsmönnum Mjallar Friggjar á mánudag. "Þegar ákvörðunin liggur fyrir er hægt að bregðast við: Annað hvort með því að auglýsa starfsleyfi sem fer þá í grendarkynningu eða að fyrirtækið þurfi að flytja," segir Davíð. Viðar segir mikið þurfa að koma til svo bótaábyrgð sé lögð á bæjaryfirvöld verði tjón á svæðinu. Sama eigi við um eftirlitsaðila bæjaryfirvalda. Þeirra hlutverk sé fyrst og fremst að draga úr líkum tjóna. Hafi bæjaryfirvöld veitt fyrirtækinu bráðabirgðaleyfi flokkist það sem starfsleyfi. Munnlegt leyfi nægi, þó það séu ekki góðir stjórnsýsluhættir. Fyrirtækið sé því líklega ekki bótaskylt verði tjón nema það sýni af sér gáleysi eða ásetning.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira