Norðurlandamafían engu betri 22. maí 2005 00:01
Þeir sem halda því fram að Austur-Evrópumafían hafi verið allsráðandi við stigagjöfina í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í gær ættu að líta sér aðeins nær. Mafían var ekki minni þegar Norðurlandaþjóðirnar voru annars vegar. Það var hin grísk-sænska söngkona Helena Paparizou sem vann hug og hjörtu Evrópubúa með laginu „My number one“ og tryggði Grikkjum sigur í fimmtugustu söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin var í Kænugarði í Úkraínu. Grikkir fengu langflest stig, eða 230. Í öðru sæti hafnaði Malta með söngkonunni Chiöru Siracusa. Rúmenar lentu í þriðja sæti, Ísrael í því fjórða og Lettar enduðu í fimmta sæti. Norska sveitin Wig Wam þótti einna sigurstranglegust en Norðmenn þurftu að láta sér lynda níunda sætið af þeim tuttugu og fjórum þjóðum sem kepptu til úrslita. Greint var frá því í úrslitakeppninni í gærkvöldi að íslenska lagið, með Selmu Björnsdóttur fremsta í flokki, hafnaði í sextánda sæti af tuttugu og fjórum í forkeppninni en Rúmenar voru þar í efsta sætinu. Mörgum hefur verið tíðrætt um það hversu áberandi Austur-Evrópumafían hafi verið við stigagjöfina í keppninni þar sem nágrannaþjóðir gáfu hver annarri flest stig. Þetta var ekki síður áberandi þegar fylgst var með stigagjöf Norðurlandaþjóðanna. Ef litið er á stigin í undankeppninni þá gáfu Danir Norðmönnum 12 stig, Íslendingum 10 stig, og Finnum 8 stig. Norðmenn gáfu Dönum 12 stig, Finnum 10 og Íslandi 8. Svíar gáfu Dönum 12 stig, Finnum 10, Norðmönnum 8 og Íslendingum 7 stig. Ísland gaf Norðmönnum 12 stig og Dönum 10. Í aðalkeppninni í gærkvöldi gáfu Danir Norðmönnum 12 stig og Svíum 7. Danir fengu 12 stig hjá Norðmönnum og 10 stig hjá Finnum en Finnar gáfu Norðmönnum svo 12 stig. Svíar gáfu Dönum 10 stig og Norðmönnum 8 og Íslendingar gáfu frændum sínum Norðmönnum 12 stig og Dönum 10.
Innlent Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira