Fella átti úrskurð í febrúar 8. september 2005 00:01
Ákvörðun um legu Sundabrautar bíður nú úrskurðar umhverfisráðherra vegna þriggja kæra sem bárust vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Á borgstjórnarfundi í janúar kom fram í máli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra að frestur umhverfisráðherra til að fella úrskurð rynni út í febrúar. Ekki náðist í Sigríði Önnu Þórðardóttur í gær þar sem hún er erlendis í fríi, en Haraldur Johannessen, aðstoðamaður ráðherra, segir að óljóst sé hvenær úrskurðar sé að vænta, hins vegar sé farið að styttast í hann. "Þetta viðamikið og óvenjulega flókið mál," sagði Haraldur. Ef umhverfisráðherra samþykkir innri leið Sundabrautar, verður Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar breytt í samræmi við ákvörðunina. Ytri leiðin, sem Reykjavíkurlistinn hafði hingað til talað fyrir, byggir á hábrú yfir sundin sem myndi kosta tæpa tíu milljarða og var reiknað með 10 prósent hagkvæmni. Innri leiðin, sem nú er stefnt að því að fara, kostar um átta milljarða. Tvær innri leiðir eru mögulegar. Annars vegar eyjaleið, sem Vegagerðin hefur lagt áherslu á. Hins vegar lágreist brú yfir Kleppsvík. Skipulagsstofnun komst að þeirri niðurstöðu að brúarleiðin sé vænlegasti kosturinn fyrir lagningu Sundabrautar. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, segir að þó svo hábrú sé ekki lengur helsti kostur Reykjavíkurlistans, sé ekki útilokað að haganlega hönnuð brú yfir Kleppsvík verði borgarprýði. Brúin mun þó líklega liggja vestar í hamarinn en núverandi tillaga segir til um. "Þá þarf að skoða stokkalausnir í Vogahverfi, þannig að hverfið geti endurheimt samband sitt við Elliðavog." Í því sambandi segir Dagur að fyrir liggi stækkun Bryggjuhverfisins og uppbygging íbúabyggðar í Súðavogi og Dugguvogi. Með ákvörðun ríkisstjórnarinnar að átta milljörðum verði varið Sundabraut á árunum 2007 til 2010, verður árið 2007 hægt að hefja framkvæmdir við brautina yfir í Grafarvog. Seinni hluti brautarinnar, um Álfsnes upp á Kjalarnes verður framkvæmd með tilstilli einkaframkvæmdar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira