Hluti Viðeyjar látið á sjá 31. maí 2005 00:01 "
Ég hef fylgst gaumgæfilega með þessu um langa hríð og það er engum vafa undirorpið í mínum huga að framkvæmdirnar við Sundahöfn spila stórt hlutverk í þeirri landeyðingu sem orðið hefur á eynni," segir Örlygur Hálfdánarson, fyrrverandi bókaútgefandi. Hann er þeirrar skoðunar að sífelldar dýpkunarframkvæmdir í og við Sundahöfn hafi haft þau áhrif að syðsti hluti Viðeyjar hefur látið verulega á sjá undanfarin ár. Örlygur hefur heimsótt eynna reglulega síðustu áratugina og segir að 20 ára gamlar spár sínar séu nú að rætast. "Það er eins og menn haldi að ef þeir grafa djúpan grunn í botn sundsins þá renni enginn sandur þangað af ströndum Viðeyjar en það er einmitt það sem á sér stað. Viðeyjarsundið, milli syðsta hluta eyjunnar og Sundahafnar, er búið að dýpka óskaplega en leyfi til þessa var einmitt veitt þar sem fræðingar töldu að slíkt hefði engin áhrif á strendur Viðeyjar. Síðan hefur ekkert eftirlit verið með þessu af hálfu opinberra aðila mér vitandi." Örlygur segir að sem barn hafi hann leikið sér áhyggjulaust á söndunum syðst á eynni en í dag sé vart nokkrum manni þar farandi vegna þess hve gljúpur sandurinn er orðinn. "Þar sökkva menn strax á kaf enda enginn sandur lengur undir heldur vatn." Rök Örlygs halda þó ekki vatni að mati Jón Þorvaldssonar, forstöðumanns tæknideildar Faxaflóahafna. Hann segir þetta hafa verið rannsakað fyrir nokkrum árum og ekkert hafi bent til að gröftur eða dýpkun innsiglingarinnar og hafnarinnar við Sundahöfn hafi valdið landrofi í Viðey. "Það sem á sér stað í Viðey er venjubundinn ágangur sjávar og ekkert annað. Besti samanburðurinn er við Engey en þar hefur einnig orðið töluverð breyting undanfarin ár þrátt fyrir að hún sé fjarri skipahöfnum. Þau rök að umferð stærri skipa raski ströndum Viðeyjar eiga sér enga stoð."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Borgin greitt nærri tuttugu milljónir fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sjá meira